Skilnaður á margbrotnum landamærum

Heiðarleg og einlæg bók um skilnað, flekaskil á milli landa, litla Ísland, vinkonur og það að fá unglinga­veikina aftur á miðjum aldri. En líka ákveðið uppgjör við bernskutrámun sem við losnum seint alveg við.

Auður Jónsdóttir
Auður Jóns­dóttir Til­finn­inga­bylt­ingin, nýjasta bók hennar, er að mati gagn­rýn­anda sann­fær­andi inn­sýn í hvernig hjón geta fjar­lægst með árunum ef þau gæta ekki að sér. Mynd: Davíð Þór

Tilfinninga­byltingin er skilnaðarbók. Ég frétti af því rétt eftir að ég fékk bókina í hendur, en rétt áður en ég byrjaði að lesa hana. Og varð strax örlítið smeykur – ég er vanur að dæma bækur, en þarf ég núna að fara að dæma hjónabönd fólks úti í bæ? En strax á fyrstu síðu kemur í ljós að þær áhyggjur voru óþarfar; sökin er augljós­lega beggja – og jafnvel frekar hennar en hans, og sá tónn helst út bókina. Höfundur einsetur sér að vera sanngjörn og hlífa sjálfri sér ekki og tekst það fjandi vel, sem er örugglega ekki auðvelt í svona aðstæðum.

Þau hjónin skilja eftir 18 ára samband – og það kemur fljótlega nokkuð skýrt í ljós að það …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár