Svanavatnið, uppgangur þjóðernispopúlisma og sækadelía

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 13.-21. nóv­em­ber.

Svanavatnið, uppgangur þjóðernispopúlisma og sækadelía

Þetta og margt annað er að ger­ast á næst­unni.

Reykjavik Dance Festival

Hvar? Reykja­vík
Hvenær? 20.–23. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: Fer eftir við­burð­inum

Vetr­ar­út­gáfa Reykja­vík Dance Festival er fögn­uður dans­lista í breiðum skiln­ingi, en marg­vís­legir við­burðir munu spretta upp á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, allt frá gjörn­ingum í partí, list­rænt spjall og sýn­ingar. Meðal við­burða er göngu­ferð með fötl­uðum og ófötl­uðum leið­sögu­mönnum um Reykja­vík, vinnu­smiðja þar sem eldri borg­urum býðst að læra að semja og spila pönk­tón­list og 35 mín­útna athöfn þar sem konur á öllum aldri skapa lif­andi and­rúms­loft með söng og dansi þar sem kven­orka ræður ríkjum. Einnig verða reif­aðar hug­myndir um krakka­veldi, eða hvernig heim­ur­inn væri ef börn réðu ríkjum og hefðu ákvörð­un­ar­vald yfir til dæmis aðgerð­ar­á­ætlun og fram­kvæmd gegn ham­fara­hlýnun.

Kvintett Rebekku Blöndal

Hvar? Harpa
Hvenær? 13. nóv­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Söng­konan Rebekka Blöndal og hljóm­sveit flytur lög stór­söng­kon­unnar Billie Holiday. Hún skildi eftir sig ótal perlur, margar þeirra magn­þrungnar ball­öður og ást­ar­lög og verður það helsta sem unn­endur hennar þekkja flutt á tón­leik­unum. Rebekka er ein af efni­leg­ustu djass­söng­konum lands­ins, og tók þátt í söngvakeppn­inni The Voice 2015, en hún ætlar að túlka lög Billie á sinn hátt.

Ecstatic Vision, Godchilla, Pink Street Boys

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 13. nóv­em­ber kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Þrjár sveitir sem eru að vinna með sæka­delíu stíga á svið á Gauknum. Ecstatic Vision koma frá Fíla­delfíu, en með­limir sveit­ar­innar stofn­uðu hana til að búa til þá tón­list sem þeim sjálfum fannst skemmti­leg­ast að hlusta á. Með þeim spila leðju­kenndu stóner-rokk­ar­arnir Godchilla og sótrokk­ar­arnir í Pink Street Boys.

ROCKY! - Óskabörn ógæfunnar

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 13. nóv­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 4.400 kr.

ROCKY er glæ­nýtt danskt verk eftir einn mest spenn­andi leik­hús­mann Dana­veldis, Tue Biering, en það tæklar rammpóli­tískt mál sem hrjáir lýð­veldi heims­ins: hvíta þjóð­ern­is­hyggju. Verkið er sett upp sem ímynduð saga and­stæð­ings hnefa­leik­ar­ans Rocky Balboa, en í þess­ari útfærslu er hann líka mynd­lík­ing fyrir upp­risu þjóð­ern­ispopúl­isma á Vest­ur­löndum. 

Drag-Súgur

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 15. nóv­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.400 kr.

Dragdrottn­ing­arnar (og -kon­ung­arnir) í kab­ar­ett­hópnum Drag-Súgur halda upp á fjög­urra ára afmæli sitt með þess­ari stór­stjörnu­sýn­ingu. Búast má við gríni og glensi, metn­að­ar­fullum til­þrifum sem RuPaul's Drag Race mætti taka sér til fyr­ir­myndar, og gor­djöss dans- og söng­at­riðum. Gestum stendur til boða kaka og þema­drykkir, blöðrur og ýmis­legt fleira.

Skjáskot

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? 19. nóv­em­ber til 21. jan­úar
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Uppi­stand­ar­inn og rit­höf­und­ur­inn Bergur Ebbi velti upp­hátt fyrir sér mál­efnum eins og hver áhrif staf­ræns veru­leika eru á hugs­anir og athafnir ein­stak­linga, til­kall mis­mun­andi kyn­slóða til rétt­lætis, BREXIT, Trump og fleiri spurn­ingum fyrir áhorf­endum Borg­ar­leik­húss­ins. Efn­is­þræðir þessa verks koma úr sam­nefndri bók hans, Skjáskot, sem kom út fyrir skömmu.

Minningardagur transfólks 

Hvar? Ráðhús Reykja­víkur
Hvenær? 20. nóv­em­ber kl. 17.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þann 20. nóv­em­ber ár hvert er minn­ing­ar­dagur trans­fólks hald­inn hátíð­legur til að minn­ast trans­fólks sem hefur verið myrt vegna kyn­vit­undar sinnar eða tekið eigið líf. Trans Ísland býður öllu trans­fólki, fjöl­skyldu og sam­herjum að koma saman og votta þeim sem hafa dáið á þessu ári virð­ingu, og á sama tíma koma saman og von­ast eftir bjart­ari fram­tíð. 

Exxistenz

Hvar? Skyn­lista­safnið
Hvenær? Til 1. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Exxistenz er umbreyt­andi fylgju­snákur sem borð­aði og braut niður Ekkisens, sýn­ing­ar­rými sem starf­rækt var í 101 Reykja­vík árin 2014–2019 og lagði drög að nýrri starf­semi sem skipu­lögð yrði í rými þess, sem til­rauna­vinnu­stofu og skyn­lista­safns. Skyn­lista­safnið var því vígt með opn­un­ar­at­höfn þann 9. nóv­em­ber kl. 17.00, með breyttum innviðum, kynn­ingu á nýjum áherslum og sam­sýn­ingu á lista­verkum sem fjalla um fram­tíð­ar­ver­und­ina. 

Svanavatnið

Hvar? Harpa
Hvenær? 21.–23. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: Frá 5.500 kr.

Svana­vatnið er ein­hver vin­sæl­asti ball­ett allra tíma og telst til helstu verka klass­íska ball­ett­heims­ins. Stór­kost­leg tón­list Tsja­jkvoskíjs á mik­inn þátt í því að ball­ett­inn hefur haldið vin­sældum sínum frá upp­hafi, en Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands mun leika hana á sama tíma og rúss­neski dans­flokk­ur­inn St. Pet­ers­burg Festival Ballet flytur verkið.

Eitur

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? Til 12. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: 6.750 kr.

Hilmir Snær og Nína Dögg takast á við kynn­gi­mögnuð hlut­verk í marg­verð­laun­uðu leik­riti um sorg­ina í ást­inni, en Eitur fjallar um frá­skilin hjón sem hitt­ast aftur tíu árum eftir skilnað við óvæntar aðstæður. Þau dansa á hár­fínni línu afbrýði­semi, sökn­uðar, vænt­um­þykju, bit­urðar og kraum­andi ástríðna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár