Brá að heyra viðhorf stjórnvalda til innflytjenda

Dovelyn Rannveig Mendoza, sér­fræð­ingur á sviði fólks­flutn­inga, seg­ist hissa á því hvernig komið er fyrir þjón­ustu við erlent starfs­fólk hér á landi. Dovelyn lýsir jákvæðri upp­lifun sinni af því þegar hún var sjálf inn­flytj­andi hér á landi fyrir um ald­ar­fjórð­ungi og telur þjón­ustu við erlent starfs­fólk hafa verið betri á þeim tíma.

Brá að heyra viðhorf stjórnvalda til innflytjenda

Dovelyn Rannveig Mendoza, sér­fræð­ingur á sviði fólks­flutn­inga, á sér athygl­is­verða sögu. Hún er fædd á Fil­ipps­eyjum en flutt­ist árið 1995, þegar hún var 16 ára gömul, til Íslands. Hér á landi vann hún til að mynda á veit­inga­stað, hjá ORA, hjá Fönn og við heim­il­is­þrif. „Ég kom með stóra drauma og minn­ingar mínar af Íslandi, mörgum árum eftir að ég fór aftur, eru allt ynd­is­lega fólkið sem ég vann með,“ segir Dovelyn. Hún bjó á land­inu um nokk­urra ára skeið og býr raunar móð­ur­fjöl­skylda hennar hér enn og vinnur verka­manna­störf. 

Dovelyn ber milli­nafnið Rannveig sam­kvæmt þágild­andi manna­nafna­lögum hér á landi, sem kváðu á um að erlent fólk sem tæki sér íslenskan rík­is­borg­ara­rétt tæki sér eitt íslenskt nafn til við­bótar eig­in­nafni sínu. Þrátt fyrir að hafa aðeins búið á Íslandi um nokk­urra ára skeið kom henni það þó ekki til hugar að breyta nafni sínu aftur, enda upp­lifun hennar sem inn­flytj­anda á Íslandi afar góð. Talar hún um Ísland og Íslend­inga sem „okkur“ og „við“.

Þar sem upp­lifun Dovelyn af því að vera inn­flytj­andi á Íslandi er einkar jákvæð var henni nokkuð brugðið þegar hún heyrði af því hvernig komið er fyrir þjón­ustu til handa erlendu starfs­fólki í dag. Telur hún slíka þjón­ustu hafa verið betri fyrir um ald­ar­fjórð­ungi síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár