Katrín bendir lögreglunni á starfsmenn Seðlabankans vegna samskipta við fréttamann

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra bendir lög­regl­unni á að rann­saka starfs­menn Seðla­bank­ans vegna sam­skipta við frétta­mann Rík­is­út­varps­ins. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hefur kært fimm stjórn­endur Seðla­bank­ans og vill koma fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra í fang­elsi. Bréf for­sæt­is­ráð­herra til lög­reglu er nú í höndum Stöðvar 2 og bréf Seðla­bank­ans til for­sæt­is­ráð­herra er komið til mbl.is.

Katrín bendir lögreglunni á starfsmenn Seðlabankans vegna samskipta við fréttamann
Katrín Jak­obs­dóttir For­sæt­is­ráð­herra afl­aði upp­lýs­inga um sam­skipti Seðla­bank­ans við fjöl­miðla­mann og vís­aði síðan lög­regl­unni á starfs­mann bank­ans. Mynd: Pressphotos.biz

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur sent bréf á Lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og greint frá sam­skiptum starfs­manns Seðla­banka Íslands við frétta­mann Rík­is­út­varps­ins undir þeim for­merkjum að hugs­an­lega hafi starfs­mað­ur­inn eða annar starfs­maður brotið lög með því að veita frétta­manni upp­lýs­ingar. 

Aðdrag­andi máls­ins er að Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hefur kvartað undan stjórn­valds­sekt Seðla­bank­ans sem lögð var á Samherja vegna meintra brota á gjald­eyr­is­við­skiptum með und­ir­verð­lagn­ingu á fiski, sem rann­sökuð voru með hús­leit árið 2012. Þor­steinn hefur kært fimm starfs­menn Seðla­bank­ans og heitið því að koma Má Guð­munds­syni, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra, í fang­elsi, eftir að stjórn­valds­sekt bank­ans gegn Samherja var dæmd ólög­mæt. Einn þess­ara starfs­manna er Ingi­björg Guð­bjarts­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans, sem átti í sam­skiptum við frétta­mann Rík­is­út­varps­ins og fékk upp­lýs­ingar frá honum. Fram kemur að engar trún­að­ar­upp­lýs­ingar hafi borist frá starfs­mann­inum til frétta­manns­ins í sam­skipt­unum sem rann­sökuð voru.

Forsætisráðherra rannsakaði málið

Samkvæmt umfjöllun Stöðvar 2 segir Katrín í bréfi sínu til lög­regl­unnar að hátt­semin, að veita fjöl­miðli upp­lýs­ingar um hús­leit, „kunni að fela í sér refsi­vert brot“. Katrín óskaði sjálf upp­lýs­inga frá Seðla­bank­anum um málið  og fékk svör í apríl. Hún svar­aði síðar bréf­inu í sept­em­ber. Samkvæmt frétt Mbl.is hefur Morg­un­blaðið bréf Seðla­bank­ans til for­sæt­is­ráð­herra 18. ágúst síð­ast­lið­inn undir höndum. Þá hefur Stöð 2 undir höndum bréf Katrínar til Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Vitnað er í bréfið í frétt Vísis.is: „Þá kemur fram í bréf­inu að áður hafi komið fram að gjald­eyr­is­eft­ir­litið hafi verið í sam­bandi við frétta­mann RÚV vegna upp­lýs­inga sem frétta­mað­ur­inn veitti því. Sam­skiptin virð­ist hafa tengst því og í engum póst­anna séu trún­að­ar­upp­lýs­ingar sendar frétta­mann­inum. Í einum póst­inum sem sendur var dag­inn fyrir hús­leit­ina virð­ist sem frétta­mað­ur­inn hafi haft upp­lýs­ingar um hús­leit­ina. Ekkert svar við póst­inum sé að finna í póst­hólfi fram­kvæmda­stjór­ans.“

Bankinn dæmdur til að veita aðrar upplýsingar

Þvert gegn grun­semdum for­sæt­is­ráð­herra um að starfs­maður Seðla­bank­ans hafi brotið lög með sam­skiptum við frétta­mann var Seðla­banki Íslands nýlega tal­inn hafa brotið gegn lögum með því að veita ekki upp­lýs­ingar til frétta­manns.

Seðla­bank­inn var í síð­ustu viku dæmdur fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur til þess að afhenda blaða­manni Frétta­blaðs­ins samn­ing sem bank­inn gerði við sama starfs­mann og átti í tölvu­póst­sam­skiptum við frétta­mann, Ingi­björgu Guð­bjarts­dóttur, vegna styrks sem bank­inn veitti henni til að stunda nám við Harvard-háskóla.

Vill seðlabankastjórann í fangelsi

Hæsti­réttur Íslands úrskurð­aði í nóv­em­ber síð­ast­liðnum að Seðla­bank­inn hefði ekki haft þá heim­ild sem bank­inn taldi sig hafa, til þess að leggja stjórn­valds­sekt á Samherja vegna gjald­eyr­is­við­skipta. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, sagði í til­efni dóms­ins ítrekað að Már Guð­munds­son færi í fang­elsi vegna máls­ins. „Það er að segja að ég held að það sé nokkuð ljóst að Már Guð­munds­son er á leið­inni í fang­elsi. Núna þarf banka­ráð að bera ábyrgð. Auðvitað á Már Guð­munds­son að fara úr bank­anum. Mér fynd­ist það ótrú­legt ef að fólk ætli að sitja uppi með mann til að stjórna Seðla­banka Íslands sem er á leið í fang­elsi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár