Misstu næstum allan rétt þegar sonurinn kom fimm vikum fyrir tímann

Guð­mundur Ingason og kona hans fengu lág­marks­upp­hæð úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði eftir að sonur þeirra fædd­ist fyrir tím­ann, en einum degi mun­aði að þau misstu allan rétt. Guð­mundur seg­ist ekki hafa getað hjálpað eins og hann vildi vegna tekju­missis með orlofstöku.

Misstu næstum allan rétt þegar sonurinn kom fimm vikum fyrir tímann
Guð­mundur og sonur hans Hætta er á að fólk nái ekki að vinna sér inn rétt til orlofs eftir að það flytur frá útlöndum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Íslend­ingar sem flytja aftur til lands­ins eftir vinnu erlendis eiga á hættu að fá litlar eða engar upp­hæðir úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði, segir Guð­mundur Ingason, sem sjálfur var í þeirri aðstöðu í fyrra. Hann og kona hans eign­uð­ust son fimm vikum fyrir tím­ann og mun­aði aðeins einum degi að þau hefðu misst öll rétt­indi til fæð­ing­ar­or­lofs. Þau fengu hins vegar aðeins lág­marks­upp­hæð þegar á hólm­inn var komið.

Í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar var rætt við sex manns sem lentu á milli skips og bryggju hjá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði vegna óhefð­bund­inna aðstæðna þeirra. Þær geta valdið því að for­eldri fái mun lægri greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði en búist var við eða missi jafn­vel rétt­indi sín alfarið. Verk­takar, starfs­menn nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja og fólk í eigin rekstri eru meðal þeirra sem geta lent í þeirri stöðu. For­eldr­arnir lýstu því hvernig reglur sjóðs­ins hefðu valdið þeim áhyggjum ofan á allt annað sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár