Eftirmál bankahrunsins gerðu lögfræðinga að milljónamæringum

Fjöldi fólks hefur síð­ast­lið­inn rúman ára­tug hagn­ast um tugi og hund­ruð millj­óna króna með setu í eða vinnu fyrir skila­nefndir og slita­stjórnir föllnu bank­anna. Launa­greiðslur þess eru í engum takti við íslenskan veru­leika. Stundin fjallar um þessa afleið­ingu hruns­ins.

Eftirmál bankahrunsins gerðu lögfræðinga að milljónamæringum
Þurftu að kljást við afleið­inga hruns­ins Þeir sem skip­aðir voru í skila­nefndir föllnu bank­anna og síðar slita­stjórnir tóku að sér gríð­ar­lega umfangs­mikið, erfitt og mik­il­vægt verk­efni. Þegar frá leið kom í ljós að greiðslur til þess­ara aðila voru ærið mis­jafnar. Á meðan að sumir unnu jafn­vel eftir tíma­gjaldi sem var lægra en jafnan tíðk­að­ist hjá lög­fræð­ingum fengu aðrir gríð­ar­legar fjár­hæðir í sína vasa. Mynd: mbl/Eggert Jóhannesson

Frá banka­hrun­inu haustið 2008 og allt fram á þennan dag hefur stór hópur fólks höndlað með gríð­ar­lega fjár­muni og eignir föllnu bank­anna. Fólk sem skipað var í skila­nefndir og slita­stjórnir hefur margt hvert fengið tugi millj­óna greiddar fyrir störf sín, sum hver hund­ruð millj­óna. Af því leiðir að fólk sem hefur tekið ákvarð­anir sem hafa haft gríð­ar­leg áhrif á end­ur­reisn íslensks efna­hags­lífs til­heyrir litlum hópi auð­fólks í íslensku sam­fé­lagi. Mörg þeirra sem hvað mest hefur kveðið að í þessum efnum eru hluti af rík­asta eina pró­senti lands­manna, og sumir hverjir í hópi þeirra ofur­ríku, 0,1 pró­sent­inu, en um báða hópana hefur Stundin fjallað ítar­lega áður. Á sama tíma hafði banka­hrunið alvar­legar afleið­ingar fyrir þús­undir Íslend­inga sem í sumum til­fellum töp­uðu öllu sínu. 

Sumt það fólk sem sett­ist í skila­nefndir föllnu bank­anna og síðar einnig slita­stjórnir þeirra var komið beint innan úr þeim sömu bönkum. Fólk sem hafði vélað um rekstur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eftirmál bankahrunsins

Dramatísk saga Lárusar komin í hring í Stoðum
SkýringEftirmál bankahrunsins

Dramat­ísk saga Lárusar komin í hring í Stoðum

Lárus Welding, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitnis, er orð­inn að rekstr­ar­stjóra eins öfl­ug­asta fjár­fest­ing­ar­fé­lags lands­ins, Stoða hf. Þar hittir hann fyrir for­stjór­ann Jón Sig­urðs­son sem Lárus segir að hafi verið lyk­il­maður í því að ráða hann til Glitnis þar sem FL Group, sem í dag heitir Stoðir, var stærsti hlut­hafi Glitnis. Báðir urðu þeir lands­þekktir í góð­ær­inu á Íslandi en saga þeirra eftir hrun er afar ólík þar sem Lárus háði bar­áttu í dóms­kerf­inu vegna efna­hags­brota á meðan Jón sigldi lygn­ari sjó.
Eigandi Glitnis sem reis upp og settist í stjórnarformannsstól Skeljungs
ÚttektEftirmál bankahrunsins

Eigandi Glitnis sem reis upp og sett­ist í stjórn­ar­for­manns­stól Skelj­ungs

Saga Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar fjár­festis teng­ist Skelj­ungi vegna eign­ar­halds fyr­ir­tækja hans á olíu­fé­lag­inu. Jón Ásgeir og Pálmi Har­alds­son, við­skipta­fé­lagi hans, keyptu og seldu Skeljung á milli sín á árunum fyrir hrunið. Afleið­ingaar þeirra við­skipta eru lík­leg til að enda í saka­máli á næstu vikum. Samtímis sest Jón Ásgeir í stól stjórn­ar­for­manns Skelj­ungs.
Lögmannsskrifstofa ráðgjafa stjórnvalda veitti  Lindarhvoli tugmilljóna þjónustu
FréttirEftirmál bankahrunsins

Lög­manns­skrif­stofa ráð­gjafa stjórn­valda veitti Lind­ar­hvoli tug­millj­óna þjón­ustu

Steinar Þór Guð­geirs­son lög­fræð­ingur var skip­aður í skila­nefnd Kaup­þings þegar Fjár­mála­eft­ir­litið tók bank­ann yfir 9. októ­ber 2008. Hann tók við fomennsku í nefnd­inni um hálfum mán­uði síðar og stýrði störfum hennar til árs­loka 2011, eða þar til skila­nefndin var lögð niður og slita­stjórn tók við verk­efnum hennar. Árið 2018 hafði Steinar Þór ríf­lega 1,2 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun og árið áður...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár