Kristín Þorsteinsdóttir hætt hjá Fréttablaðinu

Ný stjórn með nýjar áherslur hefur tekið við og Kristín lætur af störfum.

Hætt
Hætt Kristín Þor­steins­dóttir hefur unnið sinn síð­asta vinnu­dag á Frétta­blað­inu.

Kristín Þorsteinsdóttirm útgefandi og fyrr­verandi ritstjóri Frétta­blaðsins, hefur látið af störfum. Frá því greinir hún í færslu á Facebook.

Kristín varð útgefandi 365 miðla, sem gáfu meðal annars út Frétta­blaðið, árið 2014. Þá voru ritstjórar þeir Mikael Torfason og Ólafur Stephensen en í ágúst sama ár lét Mikael af störfum og hefur því verið haldið fram að það hafi verið vegna ósættis við Kristínu. Ósætti það mátti að því er heimildir herma rekja til afskipta af frétta­flutningi. Ólafur hætti skömmu síðar og kvaddi með leiðara þar sem hann gagnrýndi harðlega áhrif eigenda á ritstjórnarlegt sjálf­stæði fjölmiðla. Kristín tók þá við sem ritstjóri og Sigurjón M. Egilsson við hennar hlið sem frétta­ritstjóri. Sigurjón hætti hins vegar í mars árið 2015.

Í júní á síðasta ári lét Kristín síðan af störfum sem ritstjóri en tók aftur við sem útgefandi Frétta­blaðsins. Sem slík skrifaði hún leiðara í Frétta­blaðið í október í fyrra þar sem hún gagnrýndi meðferð saksóknara og fjölmiðla á Jóni Ásgeiri. Sættu þau skrif nokkurri gagnrýni.

Helgi Magnússon fjár­festir festi í júní síðastliðnum kaup á helmings­hlut í Torgi, útgáfu­félagi Frétta­blaðsins. Gera má ráð fyrir að brott­hvarf Kristínar tengist nýjum áherslum með tilkomu Helga. 

Færslu Kristínar má lesa hér að neðan:

„Kæru vinir og samstarfs­menn.

Ég hef unnið minn síðasta dag og skrifað minn síðasta leiðara í Frétta­blaðið. Ný stjórn hefur tekið við með nýju fólki og nýjum áherslum.

Í rúm 5 ár, lengur en nokkur annar, stjórnaði ég frétta­stofu 365 sem aðal­ritstjóri og útgefandi - þá stærstu frétta­stofu landsins - og svo Frétta­blaðinu eftir að fyrir­tækinu var skipt upp, síðustu mánuði hef ég verið útgefandi. Þar áður sat ég í stjórn 365. Flestar kenni­tölur miðlanna, sem ég stjórnaði vitna um góðan árangur. Fréttir Stöðvar 2 náðu að velgja keppinautnum undir uggum - oft vorum við með meira áhorf en RUV, visir.is komst í fyrsta skipti yfir mbl.is undir minni stjórn, við gerðum frábæra hluti með nýjum áherslum og útliti Frétta­blaðsins. Við breyttum skipuriti frétta­stofunnar og gerðum hlut kvenna meiri en nokkru sinni. Um tíma voru flestir yfirmenn konur og stundum voru vaktirnar eingöngu skipaðar konum.

Þetta voru dýrðlegir dagar.

Auðvitað skiptust á skin og skúrir. Við þurftum að velta hverri einustu krónu, enda höfðum við úr miklu minni peningum að spila en keppinautarnir. Reglulega var farið í sparnaðar­aðgerðir. Lífið var ekki alltaf auðvelt.

En ekkert af þessu hefði tekist án ykkar. Ég var svo heppin að hafa frábært starfs­fólk mér við hlið, fólk sem hefur verið tilbúið að leggja meira á sig, en hægt hefur verið að ætlast til. Fyrir það vil ég þakka ykkur af öllu hjarta.

En nú skilur leiðir. Allt tekur enda. Vonandi tekur eitthvað nýtt og skemmtilegt við. Nóg er starfs­orkan.

Takk og gangi ykkur sem allra best, Kristín“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár