Stjórnmálamenn sýni aðgát þegar fjármálaöflin þrýsta á léttara regluverk

Gylfi Zoëga, hag­fræði­pró­fessor og nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd, segir að rek­inn sé stöð­ugur áróður fyrir því að reglu­verki sé létt af fjár­mála­fyr­ir­tækjum og þeim gef­inn laus­ari taumur. „Maður skyldi vona að búið sé að læra af reynsl­unni svo það verði passað upp á þetta.“

Stjórnmálamenn sýni aðgát þegar fjármálaöflin þrýsta á léttara regluverk

Gylfi Zoëga, hag­fræði­pró­fessor og nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, segir að end­ur­skipu­lagn­ing­unni á íslensku banka­kerfi fylgi ýmsar hættur. Brýnt sé að koma í veg fyrir að óæski­legir hvatar mynd­ist á fjár­mála­mark­aði sem geti stefnt þjóð­ar­bú­inu í voða. Þetta er á meðal þess sem fram kom í máli hans á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis um skýrslu pen­inga­stefnu­nefndar í dag.

„Síðustu 10 ár höfum við haft stjórn á kerf­inu hérna. Það hafa auð­vitað verið rík­is­bankar en gengið vel í hag­kerf­inu,“ sagði Gylfi og bætti því við að nú stæðu stjórn­mála­menn frammi fyrir stórum spurn­ingum. „Hver á þessa banka, hver stjórnar þeim, hvernig verður eft­ir­lit með þeim, hvernig ætliði að skipu­leggja þetta fjár­mála­kerfi í fram­tíð­inni? Þetta eru risa spurn­ingar og ef eitt­hvað fer úrskeiðis í þessu ferli, þá er auð­vitað hætta á ferðum inn­an­lands. Yfir­leitt er það þannig að sú kyn­slóð sem lendir í fjár­málakreppu, hún hefur lært sína lexíu, og lætur hana ekki að end­ur­takast. Það er næsta kyn­slóð sem gerir það. En maður skyldi vona að búið sé að læra af reynsl­unni svo það verði passað upp á þetta.“

Gylfi bætti því við að brýnt væri að reglur á fjár­mála­mark­aði væru ekki með þeim hætti að fólk hefði hvata til þess að gera hluti sem stefndu kerf­inu öllu í voða. „Þeir hvatar sem við höfum sem ein­stak­lingar þurfa að fara saman við hags­muni þjóð­ar­innar.“ Þá benti hann á að á árunum fyrir hrun gátu fyr­ir­tæki hagn­ast umtals­vert með því að skuld­setja sig í erlendri mynt. „En fyrir allt þjóð­ar­búið var þetta stór­hættu­legt. Þarna voru hags­munir og hvatar ein­stakra aðila á skjön við það sem þjóðin og hag­kerfið þurfti á að halda. Það má ekki ger­ast að reglur séu þannig að þær hvetji til svona hegð­unar aftur. Svo það er bæði eign­ar­haldið sem þarf að vera gegn­sætt og reglu­verkið sem þarf að vera í lagi. Þetta er kannski helsta hættan hér inn­an­lands á næstu árum, að þetta fari úrskeiðis.“

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, var til við­tals í Mark­aðnum fyrir viku og gagn­rýndi stífar eig­in­fjár­kröfur í íslensku banka­kerfi. „Við erum búin að inn­leiða mun hærri eig­in­fjár­kröfur en önnur Evr­ópu­ríki,“ sagði hann og hélt því fram að eig­in­fjár­kröf­urnar væru það helsta sem stæði í vegi fyrir því að Ísland gæti orðið lág­vaxta­ríki.“

Gylfi Zoëga víkur að þessu í við­tali á Mbl.is í dag þar sem eft­ir­far­andi er haft eftir honum:

„Einn banka­stjóri stórs banka var í við­tali síð­ustu helgi og sagði að það væri lyk­il­atriði að lækka eig­in­fjár­kröf­ur á bank­anna. Því er stöðugt haldið fram af hag­fræð­ing­um bank­anna að það eigi að hleypa inn þessu er­lenda spari­fé í vaxta­muna­við­skipti því það sé æski­legt. Og núna þegar bank­arn­ir fara að taka er­lend lán á betri kjör­um þá mun press­an mynd­ast að fara að lána í er­lend­um mynt­um. Það er stöð­ugur áróður má segja fyr­ir þess­um breyt­ing­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár