Telja 15 prósent 10. bekkinga háða rafrettum

Ný könnun sýnir að hluti grunn­skóla­nema hefur reykt rafrettur oftar en 30 daga yfir ævina. Skýrslu­höf­undur leggur til bann við rafrettum.

Telja 15 prósent 10. bekkinga háða rafrettum
Rafrettur Mikill árangur hefur náðst í að draga úr sígar­ett­ureyk­ingum ung­menna und­an­farin ár.

Yfir 15 pró­sent af nem­endum í 10. bekk á Íslandi eru hugs­an­lega háðir rafrettum. Þetta kemur fram í skýrslu um heilsu og líðan grunn­skóla­nem­enda sem var lögð fyrir fund skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar nýverið og Frétta­blaðið greinir frá í dag. „Þetta eru ótrú­legar tölur og eitt­hvað sem við þurfum að taka alvar­lega,“ segir Ársæll, M. Arnarson, annar skýrslu­höf­unda.

Í könnun sem yfir 7.000 nem­endur um allt land svör­uðu kemur fram að 65 pró­sent þeirra hafa aldrei prófað að reykja rafrettur en um 20 pró­sent hafa fiktað mis­mikið við slíkt. 15,2 pró­sent segj­ast hafa reykt rafrettur oftar en 30 daga yfir ævina og eru því hugs­an­lega háðir reyk­ing­unum, sam­kvæmt skýrsl­unni.

Að mati Ársæls er sorg­legt að sjá svo háar tölur meðal ungra krakka þar sem mik­ill árangur hafi náðst í bar­átt­unni gegn hefð­bundnum tóbaks­reyk­ingum und­an­farin ár „Þetta gengur þvert á allt sem við höfum verið að berj­ast fyrir,“ segir hann. „Það eru engar rann­sóknir sem hafa sýnt fram á skað­leysi rafrettna en sífellt fleiri vís­bend­ingar benda til þess að fólk sé að fara illa út úr þessu.“

Könnunin hefur verið lögð fyrir nem­endur um ára­bil að til­stuðlan Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar. Ársæll segir greini­legt að rafrett­urnar höfði til ung­menna. „Við leggjum til að bann við rafrettum verði tekið til alvar­legar athug­unar,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár