Ungur karlmaður gekk inn í kennslustofu Háskóla Íslands í Stakkahlíð í dag, girti niður um sig buxurnar og hóf að fróa sér fyrir framan nemendur.
Eftir að hafa hrökklast þaðan út hljóp hann um skólann og veittist að tveimur konum, bæði nemanda og kennara.
Lögregla kom á vettvang skömmu síðar með fjölmennt lið og handtók manninn samkvæmt heimildum Stundarinnar.
Nemendum og starfsmönnum er brugðið og hafa fengið áfallahjálp.
Athugasemdir