Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, telur að aðild Íslands að ECT-orku­samn­ingnum feli í sér brot á stjórn­ar­skrá í ljósi þess að samn­ing­ur­inn var ekki bor­inn undir Alþingi.

„Þar sem þessi samn­ingur leggur skyldur á opin­bera aðila sem geta hugs­an­lega leitt til fjár­út­láta og skaða­bóta þá á að sjálf­sögðu að bera samn­ing­inn undir Alþingi. Ég tel því blasa við að sam­þykki samn­ings­ins hafi verið brot á 21. gr. stjórn­ar­skrár­innar,“ skrifar hann á Facebook.

„Hvaða hags­muni hafði íslenskur almenn­ingur af þát­töku Íslands í þessum samn­ingi? Svar: Enga,“ skrifar Frosti enn fremur. „Með samn­ingnum skuld­batt Ísland sig til að vinna að mark­aðsvæð­ingu orku­kerfis sem var nán­ast alfarið í eigu almenn­ings.“ Þá segir hann það hneyksli að málið hafi verið keyrt í gegn án vit­undar Alþingis og að rann­saka þurfi nánar „hverjir hvöttu til þess að þannig var staðið að málum“. 

Eins og Stundin hefur fjallað um full­giltu íslensk stjórn­völd ECT-samn­ing­inn svo­kall­aða um orku­mál þann 7. júlí 2015 og sendu vörslu­að­ila samn­ings­ins bréf því til stað­fest­ingar. Á þeim tíma var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra og Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra.

Með full­gild­ing­unni er Ísland orðið skuld­bundið að þjóða­rétti til að stuðla að frjálsum við­skiptum, sam­keppni og mark­aðsvæð­ingu á sviði orku­mála, en samn­ing­ur­inn kveður meðal ann­ars á um að ríkið skuli grípa til allra nauð­syn­legra ráð­staf­ana til að liðka fyrir frjálsum flutn­ingi orku óháð upp­runa, áfanga­stað og eign­ar­haldi og án mis­mun­unar. 

Alls hafa 122 gerð­ar­mál fyr­ir­tækja gegn ríkjum verið höfðuð á grund­velli ECT-samn­ings­ins, þar af 40 gegn Spáni, 10 gegn Ítalíu og 6 gegn Tékk­landi, en margar mál­sókn­anna eru við­bragð við aðgerðum sem stjórn­völd hafa ráð­ist í til að halda niðri raf­orku­verði fyrir almenn­ing. Bæði Ísland og Bretland eiga aðild að ECT-samn­ingnum og er því hugs­an­legt að reyna muni á ákvæði hans ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs milli land­anna. 

Gunnar Bragi Sveins­son und­ir­rit­aði full­gild­ing­ar­skjal vegna samn­ings­ins árið 2015 þar sem því er heitið að Ísland muni virða og upp­fylla ákvæði samn­ings­ins í hví­vetna. Var málið hvorki borið undir Alþingi né kynnt almenn­ingi á upp­lýs­inga­vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Stundin sendi Gunnari Braga fyr­ir­spurn um málið þann 5. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en engin svör hafa borist. Hins vegar hefur Jón Pét­urs­son, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sent bar­áttu­fólki gegn þriðja orku­pakk­anum skila­boð þar sem hann rétt­lætir full­gild­ingu samn­ings­ins og þýðir texta um hann af Wikipediu. „Þessi sátt­máli snýst fyrst og fremst um gagn­kvæma vernd fjár­fest­inga, að fjár­festar sitji við sama borð, að dreif­ing orku (líka yfir landa­mæri) sé heimil og hvatt til orku­sparn­aðar,“ skrifar Jón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár