Bakkus liggur í votri gröf

Einar Ólason skildi við Bakkus eftir að móðir hans heim­sótti hann í draumi.

Það má segja að það séu nokkrir stórir atburðir sem hafa breytt lífi mínu. Sá stærsti er senni­lega þegar ég hætti að neyta áfengis fyrir fjórum árum síðan. 

Nóttina sem ég ákvað að hætta áfeng­is­neyslu birt­ist móðir mín mér í svefni – eða ég var eig­in­lega á milli svefns og vöku þegar ég fann fyrir móður minni á rúm­stokknum og heyrði hana segja: „Einar minn, þú verður að hætta að drekka. Þetta á eftir að drepa þig.“ Þegar ég rumskaði þá fann ég fyrir tárum í hönd­unum. 

Þegar ég vakn­aði morg­un­inn eftir hringdi ég í vin minn og bað hann um að hjálpa mér að kom­ast í ein­hvers konar með­ferð. Í kjöl­farið fór ég að fara á fundi hjá SÁÁ reglu­lega, fimm sinnum í viku, einn og hálfan tíma í senn. 

Þetta varð til þess að síðan hef ég ekki neytt áfengis. Það má segja að ég hafi skilið við Bakkus vegna mis­notk­unar á honum. Ég tók hann, hnoð­aði honum saman í lófa mér, fór niður á höfn og henti honum í sjó­inn þar sem hann liggur í votri gröf. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár