Seldu nær heila götu og fengu 2,2 milljarða hvor

Bergþór Jónsson og Fritz Hendrik Berndsen seldu fast­eigna­fé­lag til Reita á 5,9 millj­arða króna í fyrra. Fjár­magnstekjur þeirra námu sam­tals 4,4 millj­örðum og greiddu þeir tæpan millj­arð í fjár­magnstekju­skatt. Félagið leigir að mestu til opin­berra aðila á fjár­lögum og greiddu Reitir sér í kjöl­farið 149 millj­ónir í arð úr félag­inu.

Seldu nær heila götu og fengu 2,2 milljarða hvor
Bergþór Jónsson Fritz og Bergþór greiddu tæpan millj­arð í skatt af fjár­magnstekjum sínum í fyrra. Mynd: mbl/Þorkell

Bergþór Jónsson og Fritz Hendrik Berndsen, sem starfað hafa saman í bygg­ing­ar­iðn­að­inum um nokk­urt skeið, fengu hvor um sig 2,2 millj­arða í fjár­magnstekjur í fyrra, eða sam­tals 4,4 millj­arða króna, sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrá rík­is­skatt­stjóra.

Bergþór og Fritz, sem reka saman fjölda fast­eigna- og bygg­inga­fé­laga, meðal ann­ars félagið Mótás, seldu fast­eigna­fé­lag sitt Vín­lands­leið ehf. til Reita á 5,9 millj­arða króna í fyrra. Félagið á rúm­lega 18.000 leigu­fer­metra af hús­næði í nær öllum fast­eignum við sam­nefnda götu. Þessar fast­eignir eru Vín­lands­leið 2-4, 6-8, 12-14 og 16 auk Norð­linga­brautar 14. Áttu Bergþór og Fritz hvor um sig helm­ing í félag­inu.

„Við leggjum eitt­hvað gott til þjóð­fé­lags­ins“

Eign­irnar eru í útleigu til 12 aðila, en flestir þeirra eru opin­berir aðilar sem eru á fjár­lögum rík­is­ins. Þeir eru Sjúkra­trygg­ingar Íslands, Matís ohf., Lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Lyfja­stofnun og Fjöl­mennt. Leigu­tekjur á árs­grunni eru um 440 millj­ónir króna og er með­al­tími leigu­samn­inga um 13 og hálft ár.

„Við vorum bara að selja fast­eigna­fé­lag á síð­asta ári,“ segir Bergþór aðspurður um fjár­magnstekjur sínar á síð­asta ári. „Það voru Reitir sem keyptu þetta af okkur.“

Vín­lands­leiðFélagið á flest húsin við göt­una og eru fast­eign­irnar að mestu í útleigu til opin­berra aðila.

Leiddu kaupin til þess að áætl­aður rekstr­ar­hagn­aður Reita hækk­aði um 350 millj­ónir króna á árs­grund­velli sam­kvæmt til­kynn­ingu félags­ins til kaup­hall­ar­innar. Afkoma árs­ins var rúmar 28 millj­ónir króna árið 2017 á meðan Bergþór og Fritz áttu félagið, en 3,1 millj­arður króna árið 2018. Má hagn­að­inn alfarið rekja til mats­breyt­inga fjár­fest­ing­ar­eigna, sam­kvæmt árs­reikn­ingi 2018. Reitir tóku við félag­inu í sept­em­ber það ár og greiddi Vín­lands­leið Reitum 149 millj­ónir króna í arð á árinu. Eignir félag­ins í lok árs­ins voru metnar á tæpa 6,3 millj­arða króna og nam eigið fé 3,7 millj­örðum.

Launa­tekjur Bergþórs árið 2018 voru hins vegar aðeins 290 þús­und krónur á mán­uði og launa­tekjur Fritz 446 þús­und krónur á mán­uði. Greiddu þeir því sam­tals aðeins um 1,3 millj­ónir króna í útsvar á árinu, en báðir eru búsettir í Reykja­vík. Segir Bergþór að engin starf­semi sé í félagi þeirra Mótási lengur.

Af fjár­magnstekj­unum renna um 486 millj­ónir króna til rík­is­sjóðs í formi fjár­magnstekju­skatts. „Við leggjum eitt­hvað gott til þjóð­fé­lags­ins,“ segir Bergþór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Tekjulistinn 2019

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár