Segir Svein Andra blóðmjólka þrotabú

Skúli Gunnar Sig­fús­son, oft­ast kenndur við Subway, segir að áætla megi að Sveinn Andri Sveins­son gæti hafa rukkað 74 millj­ónir króna fyrir það eitt að taka á móti kröfum í þrotabú WOW air.

Segir Svein Andra blóðmjólka þrotabú
Sveinn Andri Sveins­son Skúli segir Svein Andra sjúga til sín pen­ing úr þrota­búum. Mynd: Pressphotos

Skúli Gunnar Sig­fús­son, oft­ast kenndur við Subway, segir Svein Andra Sveins­son lög­mann sjúga pen­inga út úr þeim þrota­búum sem hann starfar sem skipta­stjóri hjá. „Það kemur hins vegar á óvart að kröfu­hafar, sem eru til dæmis full­trúar íslenskra skatt­greið­enda, skuli láta svona rán um hábjartan dag við­gang­ast,“ skrifar hann í grein í Frétta­blað­inu í dag.

Sveinn Andri er skipta­stjóri í þrota­búi félags­ins EK 1923 ehf., sem Skúli fór fyrir, og hefur til­kynnt Skúla til emb­ættis Hér­aðs­sakskókn­ara fyrir skila­svik og fjár­drátt eða umboðs­svik. Hefur Skúli lýst yfir óánægju sinni með störf Sveins Andra í fjöl­miðlum og meðal ann­ars kallað hann sið­blindan.

„Eftir að Sveinn Andri Sveins­son var skip­aður skipta­stjóri í þrota­búi EK 1923 ehf. var sex­tíu kröfum lýst í búið innan til­skil­ins frests,“ skrifar Skúli. „Sveinn Andri tók á móti þeim kröfum og skrif­aði á sig 15 mín­útur fyrir að taka á móti hverri kröfu og setja í möppu. Hér var ekki um að ræða vinnu við að taka afstöðu til krafn­anna eða meta þær að neinu leyti, heldur ein­ungis að mót­taka þær og skrá þær. Þar sem tíma­gjald Sveins Andra er 49.600 krónur, rukk­aði hann 12.400 krónur fyrir að mót­taka ein­falda kröfu­lýs­ingu.“

Skúli bendir á að Sveinn Andri sé skipta­stjóri þrota­bús WOW air og yfir sex þús­und kröfum hafi verið lýst í það bú og sendar til Sveins Andra. „Því hefði verið eðli­legt að Sveinn Andri rukk­aði u.þ.b. 74 millj­ónir fyrir sömu vinnu í þrota­búi WOW air,“ skrifar hann. „Ef rétt­læt­an­legt er að skrifa 15 mín­útna vinnu vegna mót­töku ein­stakrar kröfu í einu þrota­búi, hlýtur það að vera eðli­legt að gera slíkt hið sama í næsta þrota­búi sem maður fær upp í hend­urnar frá Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.“

Sveinn Andri hefur hafnað því að hann hygg­ist inn­heimta sams konar upp­hæðir fyrir störf sín vegna þrota­bús WOW air. „Af ofan­greindu má draga þá ályktun að Sveinn Andri hefur farið ráns­hendi um þrotabú EK 1923 ehf. með fullu sam­þykki stærstu kröfu­hafa þess bús,“ skrifar Skúli. „Eins og ég hef áður bent á hefur Sveinn Andri Sveins­son blóð­mjólkað þrotabú EK 1923 ehf. og skrifað á sig 2.400 vinnu­stundir fram til des­em­ber á síð­asta ári. Það sam­svarar hátt í einu og hálfu ári í fullri vinnu fimm daga vik­unnar. Skipta­stjór­inn hefur þannig sogið í sinn rann um 120 millj­ónir króna út úr búinu í formi þókn­unar fyrir vinnu við þrota­búið. Þessi vinna á að hafa farið fram sam­hliða fjöl­mörgum öðrum lög­manns­störfum og „tóm­stundum“ sem Sveinn Andri stundar. Gott væri fyrir skipta­stjór­ann að hafa í huga spek­ina úr Hug­svinns­málum: Illt er verk­þjófur að vera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár