Samtök gegn orkupakkanum dreifðu rangfærslum um héraðsdómara

„Ég stað­festi að Skúli Magn­ús­son fékk heim­ild nefndar um dóm­ara­störf til að vinna álit fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið,“ segir Hjördís Hákon­ar­dóttir, for­maður nefndar um dóm­ara­störf.

Samtök gegn orkupakkanum dreifðu rangfærslum um héraðsdómara
Orkan okkar And­stæð­ingar þriðja orku­pakk­ans gengu um bæinn fylktu liði þann 1. maí síð­ast­lið­inn. Mynd: Orkan okkar / Facebook

Orkan okkar, sam­tök sem berj­ast gegn inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans, hafa und­an­farna daga dreift óhróðri um hér­aðs­dóm­ara þar sem hann er rang­lega sak­aður um lög­brot.

Í færslu Þórarins Ein­ars­sonar, sem sam­tökin birta, er full­yrt að Skúli Magn­ús­son, dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, hafi unnið „ólög­lega álits­gerð“ fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið til að gefa inn­leið­ingu orku­pakk­ans heil­brigð­is­vott­orð.

„Það er nefni­lega vert að benda á að Skúli hafði ekki leyfi fyrir þessu auka­starfi sínu frá nefnd um dóm­ara­störf sem er brot á reglum nefnd­ar­innar sam­kvæmt lögum um dóm­stóla,“ skrifar Þórarinn.

Stundin hafði sam­band við Hjördísi Hákon­ar­dóttur, for­mann nefndar um dóm­ara­störf.

„Skúli Magn­ús­son fékk heim­ild nefndar um dóm­ara­störf til að vinna álit fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið um afmark­aða spurn­ingu sem tengd­ist þriðja orku­pakk­anum, og til­kynnti nefnd­inni jafn­framt þegar því var lokið,“ segir hún.

Bendir Hjördís á að auka­störf eru fjar­lægð af hinni opnu skrá yfir auka­störf dóm­ara á vef dóm­stól­anna þegar verki er lokið eða dóm­ari hættir að sinna því. 


Uppfært:

Þórarinn Ein­ars­son hefur beðist afsök­unar á rang­færsl­unni og pistill­inn hans sem dreift var í nafni Orkunnar okkar hefur verið lag­færður. Segist Þórarinn hafa byggt full­yrð­ingu sína á skránni yfir auka­störf dóm­ara en ekki vitað að list­inn hefði ein­ungis að geyma yfir­lit yfir yfir­stand­andi auka­störf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár