Hótað vinnuflokki og lögfræðingum fyrir að reisa tjald

Land­eig­andi hótar konu í Árnes­hreppi á Ströndum að vinnu­flokkur verði sendur til að taka niður tjald, þar sem hún heldur nám­skeið um þjóð­menn­ingu. Maðurinn á einn sjötta hluta jarð­ar­innar, en hún fékk leyfi hjá öðrum. Hann boðar millj­óna kostnað, en hún seg­ist hafa lagt allt sitt í verk­efnið.

Hótað vinnuflokki og lögfræðingum fyrir að reisa tjald
Elín Agla Briem Átti sér þann draum að halda nám­skeið í hirð­ingja­tjaldi á Ströndum, þar sem gestir fengju öðru­vísi upp­lifun af því að heim­sækja landið, auk þess að læra hand­verk horfinna kyn­slóða. Mynd: Facebook / Elín Agla Briem

„Það er verið að reisa mann­virki sem ég er á móti,“ segir Gísli Baldur Jónsson, mat­sveinn á eft­ir­launum í Reykja­vík og eig­andi að einum sjötta hluta jarð­ar­innar Selja­ness milli Ófeigs­fjarðar og Ing­ólfs­fjarðar á Ströndum, þar sem til stendur að reisa tjald fyrir nám­skeiðs­hald.

Gísli Baldur er andsnú­inn því að reist verði tjald á jörð sem hann á ásamt öðrum, en telur að nýhafnar vega­fram­kvæmdir af hálfu virkj­ana­fyr­ir­tæk­is­ins Vest­ur­verks verði af hinu góða og kveður umdeildar fyr­ir­hug­aðar virkj­ana­fram­kvæmdir á svæð­inu, við svo­kall­aða Hval­ár­virkjun, „ekki breyta nokkrum sköp­uðum hlut“. Hann hefur sent aðstand­anda tjalds­ins, Elínu Öglu Briem þjóð­menn­ing­ar­bónda, bréf með hótun um aðgerðir sem munu kosta hana „millj­ónir“, að hans sögn.

Draumur um tjald

Bréf til hrepps­nefndarLand­eig­and­inn sendir hrepps­nefnd til­kynn­ingu vegna tjalds­ins og svo annað bréf á Elínu Öglu Briem, sem stendur að því, þar sem segir að leitað verði til sýslu­manns og lög­fræð­inga.

Elín Agla seg­ist vera ein­stæð og eigna­laus móðir í árs­tíð­ar­bund­inni vinnu sem hafi átt þann draum í fimm ár að halda nám­skeið á Selja­nesi um þjóð­menn­ingu og líf fyrr á öldum. Hún hefur meðal ann­ars hlotið styrk frá verk­efn­inu Brot­hættum byggðum til þess að reisa tjald í stíl mongól­skra hirð­ingja, um 30 fer­metrar að stærð, sem tekið verður niður fyrir haustið. Elín fékk leyfi þess hluta land­eig­enda sem dvelja á svæð­inu til að reisa tjaldið á við­ar­palli og segir hún að ummerki verði lítil sem engin. „Ég hef lagt allt mitt í að kaupa efnið og koma þessu af stað,“ segir hún.

Að sögn Elínar á tjaldið að hýsa „starf­semi þjóð­menn­ing­ar­bú­skaps og þjóð­menn­ing­ar­skóla, að hlúa að líf­inu og hinu smáa. „Þetta er búinn að vera draumur minn í mörg ár, að reisa svona tjald í Árnes­hreppi,“ segir hún.

Þegar Elín fékk 800 þús­und króna styrk fyrir tjald­inu frá verk­efn­inu Brot­hættum byggðum, sem styðja á við „ein­stakt menn­ing­ar­lands­lag og nátt­úru“,  var ekki til­greint hvar tjaldið ætti að rísa. 

Vill breyta upplifun gesta

„Þegar ég sótti fyrst um styrk fyrir tjald­inu átti ávinn­ing­ur­inn að verk­efn­inu að vera að skapa góða gesti með því að vera góður gest­gjafi. Á tímum þess­arar risa­vöxnu ferða­mennsku, þar sem þú kaupir alla þjón­ustu, þá þarftu ekki að kynn­ast neinum. Þá ertu ekki góður gestur. Þá áttu bara heimt­ingu á hlutum. En sam­band við gest­gjafa er öðru­vísi, það snýst um að taka ábyrgð á staðnum, að kynn­ast staðnum. Svo er mikil áhersla á hand­verk, að rifja upp gam­alt hand­verk, þannig að við getum búið til hvað sem er og getum getum lifað án raf­magns og án olíu. Fyrsta nám­skeiðið í þessu er haldið helg­ina 12. til 14. júlí og þá höfum við boðið sér­stökum gestum,“ segir hún.

Erlendur gesturBóndinn, rit­höf­und­ir­inn og tón­listar Stephen Jenk­in­son er vænt­an­legur á nám­skeið í hirð­ingja­tjaldi í Árnes­hreppi, sem einn land­eig­enda vill að verði fjar­lægt.

Von er á gestum til lands­ins vegna nám­skeiðs­ins, meðal ann­ars kanadíska bónd­anum og rit­höf­und­inum Stephen Jenk­in­son. Auk þess verður kennt að spinna á land­náms­snældu, hópur kvæða­kvenna verður við­staddur nám­skeiðið og kanadísk söng­kona syngja fyrir við­stadda. 

Jenk­in­son hefur áður komið á Strandir og segir Elín Agla að haldin hafi verið hátíð fyrir alla íbúa og 80 nám­skeiðs­gesti undir lok síð­ustu heim­sóknar.

Margir eigendur að landinu

Gísli Baldur sendi ekki ein­göngu kröfu­bréf á Elínu Öglu, heldur stíl­aði hann annað bréf á hrepps­nefnd Árnes­hrepps, bygg­ing­ar­nefnd Árnes­hrepps og bygg­ing­ar­full­trúa Árnes­hrepps. „Mér und­ir­rit­uðum, eig­enda að 1/6 hluta jarð­ar­innar Selja­ness í Árnes­hreppii, hefur borist til eyrna að til standi að reisa ein­hvr­es­konar sam­komu­tjald í landi Selja­ness. Því mót­mæli ég harð­lega og banna alfarið að nokkuð slíkt sé gert í óþökk minni. Allar fram­kvæmdir aðrar en vega­bætur, sem stendur til að fram­kvæma á Selja­nesi, eru hér eftir harð­bann­aðar,“ segir í bréf­inu. 

Bréfið er und­ir­ritað af Gísla Baldri, en vottað af dóttur og dótt­ur­syni Péturs Guð­munds­sonar í Ófeigs­firði, sem selt hefur vatns­rétt­indi vegna Hval­ár­virkj­unar og er einn helsti stuðn­ings­maður virkj­un­ar­innar. Gísli segir systk­ini sín einnig styðja bréfið, þótt þau séu ekki til­greind í því, og að því sé helm­ingur land­eig­enda að Selja­nesi andsnú­inn hirð­ingja­tjald­inu.

„Ég fékk leyfi hjá land­eig­anda á Selja­nesi, Sveini Krist­ins­syni, til að setja upp pall fyrir tjaldið. Og hann veitti þetta leyfi fyrir hönd síns ætt­boga,“ segir Elín Agla. 

Dranga­skörðMargir þekkja Dranga­skörðin, sem sýni­leg eru af svæð­inu og rísa nærri bænum Dröngum.

Helming á móti Sveini og ætt­ingjum hans sem kenndir eru við Dranga, norðan og vestan við Dranga­skörð, sem vilja frið­lýsa land sitt til að halda því ósnortnu, eiga hins vegar afkom­endur reyk­vísks kaup­manns, sem erfði hluta jarð­ar­innar Selja­ness af föður sínum. Gísli Baldur er sonur kaup­manns­ins og kveðst hann vera á svæð­inu „alltaf af og til“. Langafi hans bjó þar, auk ömmu hans, og svo fór faðir hans þangað í sveit. Gísli Baldur er 81 árs.

Styður vegaframkvæmdir en ekki tjaldið

Fram­kvæmd­irnarFjöldi fólks hefur komið Elínu Öglu til hjálpar við að upp­fylla draum­inn um hirð­ingja­tjald í Árnes­hreppi. Hún segir þess gætt að röskun á nátt­úru verði sem minnst, enda séu holur grafnar fyrir pall­inn sem fylla megi upp í.

Yfir­stand­andi vega­fram­kvæmdir eru á vegum Vest­ur­verks, sem vill stofna til virkj­ana­fram­kvæmda á Ófeigs­fjarð­ar­heiði og ofan Eyvinda­fjarðar, norðan og vestan Selja­ness. Til þess þarf að breikka og hækka veg í Ing­ólfs­firði, og breyta legu veg­ar­ins, svo koma megi stór­virkum vinnu­vélum um sveit­ina, þar sem nú er engin heils­árs­byggð.

Gísli Baldur seg­ist ekki hafa áhyggjur af virkj­ana­fram­kvæmd­unum. „Ég fór þarna fyrir 40 árum og skoð­aði þetta,“ segir hann um virkj­ana­svæðið. Hann kveðst ekki hafa áhyggjur af því að fossar rýrni og hverfi, eins og gert er ráð fyrir í umhverf­is­mati. „Það kemur bara í ljós,“ segir hann.

Í fyrra­dag stöðv­aði íbúi á Ströndum, Elías Svavar Krist­ins­son af Dröngum, vega­fram­kvæmdir með því að standa í vegi fyrir skurð­gröfu. „Menn eru að leggj­ast fyrir skurð­gröf­urnar,“ segir Gísli Baldur og kveður rétt­ast að berj­ast gegn fram­kvæmdum fyrir dóm­stólum. Minja­stofnun stöðv­aði síðan fram­kvæmd­irnar aftur í gær tíma­bundið, þar sem ekki hafði verið greint hvaða áhrif þær hefðu á forn­minjar á svæð­inu.

Gísli segir stuðn­ing ríkja við að leggja nútíma­legri veg, þótt hluti íbúa vilji varð­veita ásýnd svæð­is­ins fyrir kom­andi kyn­slóðir og verja ósnortin víð­erni fyrir fram­kvæmdum. „Það vilja það allir, nema þessir menn sem eru að mót­mæla því.“

Þar sem veg­ur­inn endarSeljanes liggur á milli Ing­ólfs­fjarðar og Ófeigs­fjarðar. Vegurinn var lagður á átt­unda ára­tugnum og endar í Ófeigs­firði. Hafnar eru fram­kvæmdir við að breikka og hækka veg­inn og breyta legu hans til að rúma þunga­flutn­inga vegna virkj­ana­fram­kvæmda.

Stendur fastur á kröfunni

Elín Agla og stuðn­ings­menn hennar hafa haldið áfram að reisa pall undir hirð­ingja­tjaldið í dag. Hún hóf að reisa pall­inn 18. maí síð­ast­lið­inn og er því stutt í að tjaldið verði reist fyrir fyrsta nám­skeiðið sem halda á 12. til 14. júlí. Hún hyggst því ekki verða af kröfu Gísla Baldurs um að fjar­lægja allt sem lagt hefur verið í verkið.

„Ég býð vinnu­flokknum upp á kaffi ef hann mætir. Reyni að vera góður gest­gjafi,“ segir hún.

„Ég býð vinnu­flokknum upp á kaffi ef hann mætir.“

Gísli Baldur kveðst aðspurður ekki bakka með aðgerðir sínar. „Þetta stendur í bréf­inu, það sem verður gert. Ég hef engu við þetta að bæta.“

Í bréf­inu, sem stílað er á Elínu Öglu, segir orð­rétt:

„Verði ekki nú þegar horfið frá þessum fram­kvæmdum og allt sem þegar hefur verið fram­kvæmt fjar­lægt og öll ummerki löguð, verður sendur vinnu­flokkur úr Reykja­vík og allt slíkt gert á þinn kostnað. Einnig verður leitað til sýslu­manns og ef þarf til lög­fræð­inga um fulln­ustu í þessu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalárvirkjun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár