Fylgni milli notkunar ópíóða og dauða eftir skurðaðgerðir

Ný íslensk rann­sókn sýnir meiri hættu á dauða eftir aðgerð hjá þeim sem nota mor­fín­skyld og kvíða­still­andi lyf. Læknir vill sam­starf við heilsu­gæslu um breytta lyfja­gjöf í aðdrag­anda aðgerða.

Fylgni milli notkunar ópíóða og dauða eftir skurðaðgerðir
Notkun ópíóða auka á hættu við aðgerðir Notkun á ópíóða­lyfjum og kvíða­still­andi lyfjum fyrir skurð­að­gerðir hafa fylgni við verri horfur sjúk­linga eftir aðgerð­irnar, sam­kvæmt nýrri, íslenskri rann­sókn. Mynd: Shutterstock

Nið­ur­stöður nýrrar íslenskrar rann­sóknar leiða í ljós að þeir sjúk­lingar sem leysa út lyf­seðla fyrir mor­fín­skyld lyf og benzodiazepínlyfjum fyrir skurð­að­gerðir eru í meiri hættu á að deyja innan 30 daga frá aðgerð­inni. Læknir sem leiðir rann­sókn­ar­hóp sem vann að rann­sókn­inni segir að nið­ur­stöð­urnar geti von­andi gagn­ast í bar­átt­unni við þann far­aldur sem notkun mor­fín­skyldra lyfja sé orð­inn í heim­inum og verði sjúk­lingum og heil­brigð­is­starfs­fólki hvatn­ing til að breyta lyfja­töku sé þess kostur.

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn hefur und­an­farin ár unnið að gerð gagna­grunns sem lýsir lyfja­notkun sjúk­linga mán­uð­ina fyrir skurð­að­gerð á Land­spít­ala á árunum 2005 til 2015. Um er að ræða ríf­lega 42 þús­und skurð­að­gerðir. Rann­sóknin er kynnt í grein sem birt­ist í JAMA Surgery þann 19. júní síð­ast­lið­inn, einu virtasta vís­inda­tíma­riti heims á sviði skurð­lækn­inga.

Fylgni en ekki hægt að sýna fram á orsakasamband

Martin Ingi Sig­urðs­son, yfir­læknir á svæf­inga- og gjör­gæslu­deild Land­spít­ala, leiðir hóp­inn og segir hann að auk þess að kanna áhrif notk­unar mor­fín­skyldra lyfja, ópíóða, þá hafi læknar jafn­framt áhyggjur af afdrifum sjúk­linga sem taki kvíða­still­andi lyf af flokki benzodiazepína, sem til dæmis eru Tafil og Mogadon. Notkun þeirra hefur verið vax­andi hér á landi og víðar.

„Eftir því sem skurð­að­gerð býðst sem með­ferð­ar­mögu­leiki við æ fleiri sjúk­dómum hjá eldri og veik­ari sjúk­lingum er það skylda okkar að reyna að gera árangur þeirra eins góðan og kostur er“

Í rann­sókn­inni voru horfur sjúk­linga sem und­ir­geng­ust skurð­að­gerðir kann­aðar í sam­hengi við lyfja­notkun sjúk­linga mán­uð­ina fyrir aðgerð. Þarf voru bornar saman horfur sjúk­linga sem leystu út lyf­seðla fyrir mor­fín­skyldum lyfjum, benzodiazepínlyfjum eða lyfjum úr báðum lyfja­flokkum, við ein­stak­linga sem tóku engin lyf úr þessum lyfja­flokki fyrir aðgerð. Nið­ur­stöð­urnar leiddu í ljós að ein­stak­lingar sem leystu út lyf­seðla fyrir bæði mor­fín­skyldum lyfjum og benzodiazepínlyfjum höfðu hærri dán­ar­tíðni innan 30 daga frá aðgerð og hærri lang­tíma dán­ar­tíðni en sam­an­burð­ar­ein­stak­lingar.

„Það er mik­il­vægt að geta þess að við getum ekki sýnt fram á orsaka­sam­band með þeirri aðferð­ar­fræði sem beitt var, ein­ungis fylgni milli þessa. Því gagn­ast nið­ur­stöð­urnar einkum til að leggja drög að næstu skrefum sem myndu miða að inn­gripi í lyfja­notkun,“ segir Martin.

Nýta þarf tímann til að bæta líkamlegt ástand

Martin bendir á að stórar skurð­að­gerðir séu meiri­háttar atburðir í lífi fólks og aðdrag­andi slíkra aðgerð geti orðið hvati að breyttri hegðun. Þegar sé í gangi sam­starfs­verk­efni milli Land­spít­ala og Heilsu­gæsl­unnar sem miði að því að bæta lík­am­legt ástand sjúk­linga sem und­ir­gang­ist lið­skipti­að­gerðir, með því að með­höndla og greina blóð­skort, vannær­ingu, ofþyngd, hækk­aðan blóð­sykur og að hjálpa fólki að hætta að reykja fyrir aðgerðir, til að bæta árangur þeirra.

„Við von­umst til þess að nið­ur­stöður okkar hvetji sjúk­linga og heil­brigð­is­starfs­fólk til þess að yfir­fara vand­lega lyfja­notkun með til­liti til þess­ara lyfja­flokka og gera breyt­ingar fyrir aðgerð ef þess er nokkur kostur. Eftir því sem skurð­að­gerð býðst sem með­ferð­ar­mögu­leiki við æ fleiri sjúk­dómum hjá eldri og veik­ari sjúk­lingum er það skylda okkar að reyna að gera árangur þeirra eins góðan og kostur er. Við teljum að tím­inn fyrir aðgerð sé þar van­nýttur, en hann má oft nýta til að bæta lík­am­legt ástand sjúk­lings­ins, sem svo bætir árangur aðgerð­ar­innar.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár