Vigdís Hauksdóttir birtir trúnaðargögn um málefni borgarstarfsmanns og segir njósnað um sig

Vigdís Hauks­dóttir segir Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra og nú borg­ar­rit­ara, taka þátt í njósnum um sig og birtir trún­að­ar­gögn vegna kvart­ana starfs­manns á Facebook-síðu sinni.

Vigdís Hauksdóttir birtir trúnaðargögn um málefni borgarstarfsmanns og segir njósnað um sig

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, birtir í dag 38 myndir af gögnum bráða­birgða­verk­ferlis vegna kvart­ana starfs­manns Ráð­húss­ins um ein­elti af hennar hálfu. Hluti skjal­anna eru merkt „trún­að­ar­mál“. Segir hún að njósnað hafi verið um sig og að Stefán Eiríks­son, borg­ar­rit­ari og fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, „vinni vel fyrir meiri­hlut­ann“ í mál­inu.

„Hér er hluti af geggj­un­inni sem á sér stað í ráð­hús­inu,“ skrifar Vigdís á Facebook. „Það er búið að njósna/rann­saka mig í tætlur. Praktískt að hafa fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins með sér í liði. Hann hefur þegar sagt að hann vilji ekki vinna fyrir mig sem borg­ar­rit­ari - en vissu­lega vinnur hann vel fyrir Dag og co ...!!!“

Helga Björg Ragn­ars­dóttir, skrif­stofu­stjóri skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara, telur sig hafa setið undir „árásum á starfs­heiður sinn og æru“ frá til­teknum borg­ar­full­trúum og einkum Vigdísi, að því kemur fram í ein­eltiskvörtun til borg­ar­rit­ara frá lög­manni hennar, Sigrúnu Ingi­björgu Gísla­dóttur. Eineltis- og áreitni­teymi Ráð­húss­ins hefur verið kallað saman vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár