Sigmundur Davíð líkir þriðja orkupakkanum við þorskastríðin

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son ímyndar sér hvernig brugð­ist yrði við veiðum Breta á Íslands­miðum í nútím­anum í grein í Morg­un­blað­inu. Eins og í umræðum um þriðja orku­pakk­ann yrðu þeir sem mót­mæla sak­aðir um „ein­angr­un­ar­hyggju og poppúl­isma“.

Sigmundur Davíð líkir þriðja orkupakkanum við þorskastríðin

Ef þorska­stríðin ættu sér stað í dag mundi rík­is­stjórnin gefa eftir gagn­vart Bretum og fara sömu leið og hún ætlar sér í máli þriðja orku­pakk­ans. Þetta er mat Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, í grein í Morg­un­blað­inu í dag þar sem hann lýsir ímynd­aðri atburða­rás þar sem deila Íslend­inga og Breta um fisk­veiði­heim­ildir á 6. til 8. ára­tug síð­ustu aldar fer fram í nútím­anum.

Í grein­inni, sem ber tit­il­inn „Hvað ef þorska­stríðin hæfust núna?“ segir Sig­mundur Davíð að stjórn­málin og sam­fé­lagið séu að breyt­ast og ekki endi­lega til góðs. „Þótt sumir telji hin nýju stjórn­mál tím­anna tákn og álykti að nútím­inn sé alltaf betri en allt annað getur verið gagn­legt að setja hlut­ina í sögu­legt sam­hengi,“ skrifar hann. „Það má t.d. velta fyrir sér hvernig mál hefðu þró­ast ef mik­ils­verðir atburðir for­tíðar hefðu átt sér stað nú á dögum.“ 

Í fram­hald­inu lýsir hann skáld­aðri atburða­rás þar sem breskir tog­arar hafa aukið veiðar sínar á Íslands­miðum. Lýsir hann því hvernig „rétt­ar­fars- og mann­úð­ar­ráðu­neytið“ mundi hafna beiðni Land­helg­is­gæsl­unnar um notkun tog­víra­klippna til að klippa á veið­ar­færi Breta vegna form­leg­heita, skriffin­sku og umhverf­is­sjón­ar­miða.

Þá lýsir hann því hvernig „virkir í athuga­semdum“ og „tíst­arar“ mundu gera grín að Land­helg­is­gæsl­unni fyrir hug­mynd­inni um klipp­urnar. „Öllu þessu eru gerð góð skil í spjall­þætti á RÚV þar sem vinir drekka saman kaffi og velt­ast um af hlátri yfir umræðu um landa sína sem telji að þeir séu mik­ils megn­ugir og ætli í slag við alþjóða­sam­fé­lagið með heima­til­bú­inn „mini­sjó­plóg“ að vopni,“ skrifar Sig­mundur Davíð.

Sig­mundur Davíð tekur dæmi um brand­ara sem hann ímyndar sér að birtir yrðu á sam­fé­lags­miðlum vegna þorska­stríða nútím­ans. „Skemmti­leg­astur þykir tíst­ari úr Vesturbæ Reykja­víkur sem sýnir mynd af sund­blöðkum, flot­hring í formi guls and­ar­unga og bleikum barna­skærum með athuga­semd­inni: „Nýjasta hug­mynd for­stj. Landhg. að lausn landh.deil­unnar #islenskisjoher­inn“.“

Þorska­stríðinVarð­skipið Óðinn og frei­gáta breska sjó­hers­ins HMS Scylla 23 rák­ust saman í þorska­stríð­inu í febr­úar 1976.

Í fram­hald­inu lýsir hann því hvernig flokk­ur­inn „Sam­hreyf­ingin“ mundi nota málið sem rök fyrir því að ganga í Evr­ópu­sam­bandið. Hann tengir málið við þriðja orku­pakk­ann og umræð­una um fyr­ir­vara um að sæstrengur verði ekki lagður til Íslands nema með aðkomu Alþingis. „Aðrir benda á að lausnin felist í til­lögu um að Alþingi sam­þykki fyr­ir­vara þess efnis að Bretar skuli ekki auka veiðar sínar innan 50 mílna frá því sem nú er nema að und­an­geng­inni umfjöllun Alþingis. Þeir sem efast um þessa leið eru spurðir hvort þeir treysti ekki Alþingi.“

Sig­mundur Davíð segir að allir sem mundu ekki vilja gef­ast upp gegn kröfum Breta í þessum þorska­stríðum nútím­ans yrðu sak­aðir um „ein­angr­un­ar­hyggju og poppúl­isma“ vegna „þjóð­ern­is­legrar frekju“. Segir hann að litla hjálp yrði að fá frá Norð­ur­lönd­unum og öðrum vina­þjóðum. „Sér­stak­lega er varað við því að leita lið­sinnis Banda­ríkj­anna (þar er Trump) eða Rúss­lands (þar er Pútín),“ skrifar Sig­mundur Davíð.

Loks segir hann að ákveðið yrði að fara „fyr­ir­vara­leið­ina“ í trássi við vilja kjós­enda, sömu leið og rík­is­stjórnin vill fara í máli þriðja orku­pakk­ans. Þá yrði gerð krafa um að dregið yrði úr fisk­veiðum á alþjóða­vísu vegna umhverf­is­sjón­ar­miða. „Þannig megi draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda,“ skrifar Sig­mundur Davíð. „Þannig væru einnig settar hömlur á að skip sigldu of langt frá landi. Fyrir vikið þyrfti Land­helg­is­gæslan ekki að sigla um allar trissur og með því myndi kolefn­is­spor stofn­un­ar­innar minnka veru­lega“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár