SA telja hóteleiganda sem skerti kjör eftir kjarasamninga hafa verið í fullum rétti

Samtök atvinnu­lífs­ins hafa tekið upp hansk­ann fyrir for­ráða­menn Hót­el­keðj­unnar ehf. og CapitalHotels ehf. og segja að ein­hliða upp­sagnir á launa­kjörum hót­el­starfs­fólks hafi ekk­ert með kjara­samn­inga að gera, aðeins veltu­sam­drátt í hót­el­geir­anum.

SA telja hóteleiganda sem skerti kjör eftir kjarasamninga hafa verið í fullum rétti

Samtök atvinnu­lífs­ins telja að Hót­el­keðjan ehf. og CapitalHotels ehf., fyr­ir­tæki í eigu Árna Vals Sól­ons­sonar og Svan­laugar Idu Þrá­ins­dóttur, hafi verið í fullum rétti þegar gripið var til hag­ræð­ing­ar­að­gerða gagn­vart starfs­fólki vegna „vænt­an­legs kostn­að­ar­auka“ skömmu eftir að kjara­samn­ingar voru und­ir­rit­aðir.

Efling hefur lýst því yfir að upp­sagnir hót­el­stjór­ans Árna Vals Sól­ons­sonar á launa­kjörum starfs­manna feli í sér van­efndir á nýund­ir­rit­uðum kjara­samn­ingi. Krafðist stétt­ar­fé­lagið fundar með fram­kvæmda­stjóra SA vegna máls­ins í síð­ustu viku og mun fund­ur­inn fara fram nú á mið­viku­dag sam­kvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar.

Segjast hafa hætt yfirborgunum vegna tekjusamdráttar

Fyr­ir­tækin hafa gefið þær skýr­ingar að starfs­fólki hafi verið „yfir­borgað“. Draga hafi þurft úr yfir­borg­unum og breyta vakta­fyr­ir­komu­lagi til að ná fram sparn­aði vegna tekju­sam­dráttar. Hag­ræð­ing­ar­að­gerð­irnar hafi ekk­ert með kjara­samn­inga að gera. „Ég er bara að segja upp launa­liðnum, sem sagt því sem ég er að borga umfram taxta,“ sagði Árni Valur í við­tali við Frétta­blaðið og bætti því við að breyt­ing­arnar hefðu verið gerðar í sam­ráði við lög­fræð­ing hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins. „Fólkinu líður vel í vinnu þangað til hún kom þessi kell­ing þarna, komm­ún­ist­inn, til valda hjá Eflingu.“

SA sendi Eflingu bréf um miðjan maí þar sem gripið er til varna fyrir hót­el­fyr­ir­tækin og skýr­ingar þeirra á tíma­setn­ingu upp­sagn­anna teknar gildar. Stundin óskaði eftir því að fá bréfið afhent, en að sögn Ragnars Árna­sonar, for­stöðu­manns vinnu­mark­aðs­sviðs SA, er bréfið trún­að­ar­mál, ritað fyrir hönd aðild­ar­fyr­ir­tækis vegna starfs­manna­mála þar sem reynir á túlkun laga og kjara­samn­inga. „SA er óheim­ilt að senda þau sam­skipti til ann­arra aðila. Auk þess koma fram í bréf­inu rekstr­ar­upp­lýs­ingar sem óskað hefur verið trún­aðar um,“ segir hann í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Lögðu líf og heilbrigði byggingarstarfsmanna í hættu

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem deilt er um kjör og aðbúnað starfs­manna hjá hót­elum sem heyra undir CapitalHotels ehf. Í októ­ber síð­ast­liðnum bann­aði Vinnu­eft­ir­litið alla vinnu hjá City Park Hótel í kjöl­far eft­ir­lits­heim­sóknar sem leiddi í ljós að aðbún­aður, holl­ustu­hættir og öryggi bygg­ing­ar­starfs­manna upp­fylltu ekki laga­kröfur. Taldi Vinnu­eft­ir­litið að líf og heil­brigði starfs­manna á bygg­ing­ar­vinnu­stað væri í hættu en ráð­ist hafði verið í bygg­ing­ar­fram­kvæmdir án bygg­ing­ar­leyfis frá Reykja­vík­ur­borg og merki voru um að starfs­menn svæfu á verk­stað. City Park Hótel rataði svo aftur í frétt­irnar þann 25. febr­úar síð­ast­lið­inn þegar til snarpra orða­skipta kom milli Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, for­manns Eflingar, og eig­and­ans Árna Vals Sól­ons­sonar vegna fyr­ir­hug­aðrar atkvæða­greiðslu um boðun verk­falls á meðal starfs­manna hót­els­ins sem eru í Eflingu.  

Efling hefur gagn­rýnt SA harð­lega vegna máls­ins og lýst áhyggjum af því að sam­tökin taki sér stöðu með hót­el­stjór­anum. „Efling mót­mælir því harð­lega að SA styðji fyr­ir­tæki í því að koma sér hjá greiðslu umsam­inna hækk­ana og þar með efndum Lífs­kjara­samn­ings,“ segir í bréfi sem Efling sendi SA þann 20. maí. „Sú spurn­ing vaknar hvort Samtökin telji efndir á Lífs­kjara­samn­ingnum val­kvæðar og háðar vilja eða hent­ug­leika, sem aftur vekur upp stórar og alvar­legar spurn­ingar um traust milli aðila og ásetn­ing að baki kjara­samn­ings­gerð.“ Þá hefur Alþýðu­sam­band íslands „harma[ð] við­brögð þeirra atvinnu­rek­enda sem í kjöl­far nýgerðra kjara­samn­inga hafa gripið til upp­sagna á launa­kjörum starfs­manna sinna að sögn vegna þess kostn­að­ar­auka sem kemur til vegna gild­is­töku samn­ing­anna“. 

Haft er Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­manni Eflingar, í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu að SA sé að „kóa með verstu sort af kap­ít­alista“.  Um helg­ina birti félagið heil­síðu­aug­lýs­ingu í Frétta­blað­inu þar sem launa­fólk er hvatt til að hafa sam­band ef kjör þess hafa verið rýrð með ein­hverjum hætti eftir að kjara­samn­ingar tóku gildi.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár