Hækkun eftirlitsgjaldsins mun hafa smávægileg áhrif á gjaldskrár

Samtök orku- og veitu­fyr­ir­tækja leggj­ast gegn því að raf­orku­eft­ir­lits­gjald verði hækkað til að full­nægja auknum kröfum vegna þriðja orku­pakk­ans.

Hækkun eftirlitsgjaldsins mun hafa smávægileg áhrif á gjaldskrár

Samtök orku- og veitu­fyr­ir­tækja á Íslandi leggj­ast gegn því að raf­orku­eft­ir­lits­gjöld verði hækkuð vegna inn­leið­ingar þriðja orku­pakk­ans og segja að gert sé ráð fyrir því að „hægt verði að varpa umræddum kostn­aði út í verð þjón­ust­unnar“. 

Þetta kemur fram í umsögn sam­tak­anna, Samorku, um inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans í íslenskan rétt. Jafn­framt lýsa þau áhyggjum af því að Orku­stofnun fái of rúmar heim­ildir til að leggja á stjórn­valds­sektir. 

Inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans fylgja laga­breyt­ingar er varða sjálf­stæði Orku­stofn­unar og auknar vald­heim­ildir við fram­kvæmd raf­orku­eft­ir­lits. Þannig fær stofn­unin heim­ild til að áminna rekstr­ar­að­ila og leggja á stjórn­valds­sektir auk þess sem gjaldið sem stendur undir kostn­aði við raf­orku­eft­ir­lit er hækkað, meðal ann­ars vegna kostn­aðar af þátt­töku í ACER, hinni sam­evr­ópsku Sam­starfs­stofnun eft­ir­lits­að­ila á orku­mark­aði. 

„Ef starf­semi raf­orku­eft­ir­lits á að full­nægja þeim kröfum sem gerðar eru sam­kvæmt þriðju raf­orku­til­skip­un­inni þurfi að auka fjár­magn til starf­sem­innar til muna,“ segir í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varpi Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur um breyt­ingar á raf­orku­lögum. „Til að Orku­stofnun geti sinnt lög­bundnu raf­orku­eft­ir­liti sínu með sjálf­stæðum og full­nægj­andi hætti, og mætt þeim nýju verk­efnum sem þriðja raf­orku­til­skip­unin kveður á um, er með frum­varpi þessu lagt til að raf­orku­eft­ir­lits­gjald skv. 31. gr. raf­orku­laga hækki um 45%, þ.e. í 0,58 aura á hverja kWst fyrir raf­orku mataða inn á flutn­ings­kerfið og í 1,45 aura á kWst fyrir raf­orku til dreifi­veitna.“  

Samtök orku­fyr­ir­tækja segj­ast ekki geta tekið undir nauð­syn þess að hækka eft­ir­lits­gjöldin. „Skiptir þá ekki máli þó gert sé ráð fyrir að hægt verði að varpa umræddum kostn­aði út í verð þjón­ust­unnar,“ segja þau.

Þá telja sam­tökin að for­sendur sekt­ar­heim­ilda séu ekki útskýrðar í grein­ar­gerð frum­varps­ins. „Þetta verður sýnu alvar­legra þegar haft er í huga að sekt­ar­heim­ildir geti numið allt að 10% af veltu við­kom­andi fyr­ir­tækis. Hér hlýtur að skipta máli t.d. hvort um er að ræða ganga­skil eða meint brots sem snúa að mögu­legu tjóni við­skipta­vina fyr­ir­tækj­anna. Sömu­leiðis hlýtur það að eiga skipta máli hvort um yfir­sjón er að ræða (gáleysi) eða beinan ásetn­ing við­kom­andi fyr­ir­tækis. Eru því gerðar alvar­legar athuga­semdir við hversu opið ákvæðið er og þar með hversu erfitt verður fyrir Orku­stofnun að fram­kvæma það.“

Samorka eru sam­tök orku- og veitu­fyr­ir­tækja á Íslandi en innan þeirra starfa frá­veitur, hita­veitur, vatns­veitur, raf­orku­fram­leið­endur, raf­orku­salar og flutn­ings- og dreif­ing­ar­að­ilar raf­orku. Þrátt fyrir ofan­greindar athuga­semdir við fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar hefur Samorka lýst yfir stuðn­ingi við inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans. Er þetta áréttað í umsögn­inni og ánægju lýst með þær breyt­ingar sem gerðar hafa verið á skipu­lagi og umgjörð raf­orku­mála frá alda­mótum. Hér má lesa umsögn­ina í heild.

Uppfært 8. maí kl. 18:00:
Upp­haf­lega sagði fram í frétt­inni að Samorka gerði ráð fyrir að orku­fyr­ir­tækin gætu varpað kostn­aði vegna hækk­unar eft­ir­lits­gjalds­ins út í verð­lagið. Hið rétta er að Samorka bendir á að frum­varpið sjálft gerir ráð fyrir því að auk­inn kostn­aður vegna hækk­un­ar­innar sé bætt ofan á gjald­skrá. Er þar vísað til þess að flutn­ings­fyr­ir­tækið og dreifi­veit­urnar eru í sér­leyf­is­starf­semi og tekju­mörk (gjald­skrá) þeirra ákvörðuð sam­kvæmt lögum og undir eft­ir­liti Orku­stofn­unnar. Frétt­inni hefur verið breytt og beðist er vel­virð­ingar á þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár