Hugsan­legt að höfðað yrði samnings­brota­mál gegn Ís­landi vegna þriðja orku­pakkans

Lög­fræð­ing­arnir Stefán Már Stef­áns­son og Friðrik Árni Frið­riks­son Hirst telja ekki úti­lokað að ESA höfði samn­ings­brota­mál gegn Íslandi vegna þriðja orku­pakk­ans. Skúli Magn­ús­son laga­dós­ent segir þó afar hæpið að EFTA-dóm­stóll­inn myndi fall­ast á rök­semdir um að EES-sam­ing­ur­inn skyldi Íslend­inga til að leyfa sæstreng.

Þrír lög­fræð­ingar sem unnu álits­gerðir um stjórn­skipu­leg álita­mál tengd þriðja orku­pakk­anum telja hugs­an­legt að Eft­ir­lits­stofn­un EFTA höfði samn­ings­brota­mál gegn Íslandi og skuld­bind­ingar Íslands vegna orku­pakk­ans komi til kasta EFTA-dóm­stóls­ins í fram­tíð­inni. 

Friðrik Árni Frið­riks­son Hirst

Einn þeirra, Friðrik Árni Frið­riks­son Hirst lög­maður, segir að þar kynni ESA að byggja á því að Íslend­ingum beri að inn­leiða þriðja orku­pakk­ann að fullu í lands­lög. Að sama skapi geti komið til þess að ein­stak­ling­ar eða lög­að­ilar höfði skaða­bóta­mál gegn ís­lenska rík­inu á þeim grund­velli að ís­lensk lands­lög tryggi þeim ekki þau rétt­indi sem þeir ættu að njóta sam­kvæmt EES-samn­ingn­um. Þetta er haft eftir honum í við­tali á Mbl.is í dag.

Í álits­gerð Friðriks Árna og Stefáns Más Stef­áns­sonar pró­fess­ors lýsa þeir efa­semdum um að það vald­fram­sal sem felist í inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans stand­ist stjórn­ar­skrá og leggja til tvær mögu­legar lausnir; ann­að­hvort að Ísland fari fram á und­an­þágur frá reglu­gerð­unum í heild eða að þriðji orku­pakk­inn verði inn­leiddur með laga­legum fyr­ir­vara um að ákvæði um grunn­virki yfir landa­mæri öðlist ekki gildi, enda sé slíkum grunn­virkjum ekki fyrir að fara hér á Íslandi. Kaus rík­is­stjórnin að fara síð­ari leið­ina, sem er þó ekki galla­laus að mati lög­fræð­ing­anna.

Aðspurður á Mbl.is hvort staða Íslands, með til­liti til stjórn­ar­skrár­innar, veik­ist þegar stjórn­skipu­leg­um fyr­ir­vara vegna orku­pakk­ans er aflétt segir Friðrik: „Vissu­lega erum við þá hugs­an­lega að gefa frá okk­ur þann mögu­leika að óska eft­ir und­anþágum á vett­vangi sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­inn­ar. Ég held að það liggi í sjálfu sér í hlut­ar­ins eðli að ef vilji stæði til þess á síð­ari tíma­punkti þá eru þeir mögu­leik­ar af­skap­lega tak­mark­aðir þegar búið er að aflétta stjórn­skipu­lega fyr­ir­var­an­um og stað­festa þessa ákvörðun.“

Stefán Már Stef­áns­son

Stefán Már Stef­áns­son laga­pró­fessor hefur einnig tjáð sig um mögu­leik­ann á því að ESA höfði samn­ings­brota­mál gegn Íslandi.

Hann telur þó að sam­eig­in­leg yfir­lýs­ing Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra og Miguel Arias Cañete, orku- og lofts­lags­mála­stjóra Evr­ópu­sam­bands­ins um gildi þriðja orku­pakk­ans gagn­vart Íslandi dragi úr lík­unum á því. 

„Það er nátt­úr­lega ekki hægt að úti­loka mál­sókn. En í ljósi þess­arar yfir­lýs­ingar myndi ég telja mjög ósenni­legt að slík mál­sókn eigi sér stað. Þetta er ekki laga­lega bind­andi en þetta eru yfir­lýs­ingar af því tagi sem að minnsta kosti binda þá sem gefa yfir­lýs­ing­arnar,“ sagði Stefán í við­tali við Útvarp Sögu á dög­unum. 

Haft er eftir Stefáni í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins að sú leið sem rík­is­stjórnin leggi til varð­andi upp­töku og inn­leið­ingu gerða þriðja orku­pakk­ans sé „heimil sam­kvæmt stjórn­ar­skrá enda er laga­legur fyr­ir­vari um að þessi til­teknu ákvæði komi ekki til fram­kvæmda fyrr en laga­grund­völl­ur­inn, þar með talið stjórn­skip­un­ar­vand­inn, hefur verið tek­inn til end­ur­skoð­unar á Alþingi“. 

Skúli Magn­ús­son, dós­ent við Laga­deild Háskóla íslands, vann einnig álits­gerð um stjórn­skipu­leg álita­mál tengd þriðja orku­pakk­anum. Þar veltir hann upp þeirri spurn­ingu hvort unnt sé að túlka almennar reglur EES-samn­ings­ins með þeim hætti að íslenska rík­inu beri skylda til að leyfa lagn­ingu sæstrengs. Telur hann afar ólík­legt að fall­ist yrði á slíka túlkun á þjóð­rétt­ar­legum skuld­bind­ingum Íslands. 

Skúli Magn­ús­son

„Kemur þar helst til að ákvörðun um lagn­ingu sæstrengs, sem meðal ann­ars myndi liggja um land­grunn í land­helgi Íslands, er háð fjölmörgum atriðum sem eru á for­ræði aðildarríkjanna og falla utan gild­is­sviðs EES-samn­ings­ins (og raunar einnig reglna sam­bandsréttar),“ skrifar hann. „Þannig er hvers kyns hagnýting land­grunn­ins háð full­veld­isrétti íslenska ríkis­ins. Jafnvel mætti einnig færa að því rök að hér sé um að ræða nýtingu auð­linda hafs­botns­ins sem eru eign íslenska ríkis­ins í einkaréttar­legum skiln­ingi, sbr. lög nr. 73/1990 um eign­arrétt íslenska ríkis­ins að auð­lindum hafs­botns­ins, og að heim­ild til lagn­ingar sæstrengs feli í sér afsal eða kvöð á landi eða land­helgi þannig að sam­þykki Alþingis þurfi að koma til sam­kvæmt 21. gr. stjórnar­skrárinnar. Að mínu mati er því útil­okað að sæstrengur til flutn­ings raf­orku yrði lagður án þess að Alþingi tæki afstöðu til málsins, annað hvort með setn­ingu almennra reglna eða með lögum sem lytu að fram­kvæmd­inni sjálfri.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár