ASÍ leggst gegn orkupakkanum: „Feigðarflan að staðfesta markaðsvæðinguna“

Alþýðu­sam­band Íslands tekur afdrátt­ar­lausa afstöðu gegn inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans í íslenskan rétt.

ASÍ leggst gegn orkupakkanum: „Feigðarflan að staðfesta markaðsvæðinguna“

Alþýðu­sam­band Íslands leggst gegn inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans í íslenskan rétt. Þetta kemur fram í umsögn þess­arar stærstu fjölda­hreyf­ingar launa­fólks á Íslandi. 

„Raforka er grunn­þjón­usta og á ekki að mati Alþýðu­sam­bands Íslands að vera háð mark­aðs­for­sendum hverju sinni. Raforka á að vera á for­ræði almenn­ings og ekki á að fara með hana eins og hverja aðra vöru á mark­aði,“ segir í umsögn­inni sem birt­ist á vef Alþingis í dag og er und­ir­rituð af Drífu Snædal, for­seta ASÍ.

„Það er því mat ASÍ að of langt hafi verið gengið nú þegar í mark­aðsvæð­ingu grunn­stoða og feigð­ar­flan að stað­festa mark­aðsvæð­ing­una og ganga lengra í þá átt. Rafmagn er und­ir­staða til­veru okkar í dag og það er sam­fé­lags­leg ábyrð að tryggja fram­leiðslu og flutn­ing til allra, sú ábyrgð er of mikil til að mark­að­ur­inn fái að véla með hana enda hefur mark­aðsvæð­ing grunn­stoða yfir­leitt ekki bætt þjón­ustu, lækkað verð né bætt stöðu starfs­fólks.“

ASÍ telur það vera for­sendu fyrir áfram­hald­andi upp­bygg­ingu lífs­gæða að eign­ar­hald á auð­lindum sé í sam­fé­lags­legri eigu, lands­menn allir njóti arðs af nýt­ingu auð­lind­anna og geti ráð­stafað orkunni til upp­bygg­ingar atvinnu hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.

Myndband

FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu