Draga þarf úr bílaumferð um helming

Raf­bíla­væð­ing dugar ekki til að Reykja­vík­ur­borg nái mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins um útblástur, að mati sér­fræð­inga­hóps.

Draga þarf úr bílaumferð um helming

Raf­bíla­væð­ing og spar­neytn­ari bif­reiðar duga ekki til að Reykja­vík­ur­borg nái mark­miðum sínum í lofts­lags­málum. Draga þarf úr akstri um allt að 50% til að mæta mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins fyrir árið 2030.

Frétta­blaðið fjallar í dag um minn­is­blað sér­fræð­inga­hóps HR og HÍ um mat á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Minn­is­blaðið var lagt fram á fundi skipu­lags- og sam­göngu­ráðs í vik­unni og vilja full­trúar meiri­hlut­ans nota það sem grund­völl stefnu­mót­unar. Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins töl­uðu fyrir auk­inni raf­bíla­væð­ingu.

„Kjarni máls­ins er að núver­andi plön um breyt­ingar á skatt­kerf­inu sem tengj­ast raf­bíla­væð­ingu og nú eru á borð­inu, ef við skoðum vænta aukn­ingu í raf­bílum miðað við þær for­sendur, duga ekki til,“ segir Bryn­hildur Dav­íðs­dóttir, pró­fessor í umhverfis- og auð­linda­fræði, einn sér­fræð­ing­anna sem unnu minn­is­blaðið.

„Við þurfum einnig að hafa áhrif á ferða­hegðun fólks. Gera fólki kleift að nota almenn­ings­sam­göngur, ganga, hjóla en ekki síður velta með mark­vissum hætti fyrir okkur skipu­lag­inu. Hvað getum við gert til að draga úr ferða­þörf með einka­bílnum?“

Bryn­hildur bendir á að fólk þurfi ekki að hætta að nota einka­bíl­inn, heldur nota hann öðru­vísi. Skipu­leggja þurfi hverfi þannig að hann þurfi síður til að sækja þjón­ustu. Ísland eigi að vera í far­ar­broddi um metn­að­ar­fullar aðgerðir, sem verði ódýr­ari ef ekki verður ráð­ist í þær of seint.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár