„Þessir aðilar eru ekki að hugsa um íslenska hagsmuni“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra gagn­rýnir afskipti norskra stjórn­mála­sam­taka af umræð­unni um þriðja orku­pakk­ann á Íslandi.

„Þessir aðilar eru ekki að hugsa um íslenska hagsmuni“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir erlenda aðila ganga hart fram í umræðu um þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi. 

„Í þess­ari umræðu er það, í mínu minni, í fyrsta skipti sem erlendir aðilar eru á fleygi­ferð að skipta sér af íslenskum stjórn­málum. Og þessir aðilar eru ekki að hugsa um íslenska hags­muni,“ sagði ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. „Svo ég tali alveg skýrt þá er ég hér að vísa til sam­taka og stjórn­mála­flokka í Noregi sem veigra sér ekk­ert við því að vaða hér inn með allra handa full­yrð­ingar um þessi mál sem sjaldn­ast eða nokkurn tím­ann stand­ast neina skoðun.“

Guð­laugur Þór mælir fyrir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þriðja orku­pakk­ann á Alþingi í dag. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni er lagt til að Alþingi heim­ili rík­is­stjórn­inni að stað­festa fyrir Íslands hönd  ákvörðun sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar um upp­töku þriðja orku­pakk­ans í EES-samn­ing­inn „á þeirri for­sendu að engin grunn­virki yfir landa­mæri eru nú fyrir hendi á Íslandi sem gera mögu­legt að flytja raf­orku á milli Íslands og orku­mark­aðar ESB“. Þannig munu ákvæði þriðja orku­pakka ESB um slík grunn­virki, þar á meðal í reglu­gerð (EB) nr. 713/2009 um að koma á fót Sam­starfs­stofnun eft­ir­lits­að­ila á orku­mark­aði, ekki eiga við eða hafa raun­hæfa þýð­ingu á Íslandi.

Sam­tökin Orkan okkar sendu Alþingi áskorun í morgun um að hafna þriðja orku­pakk­anum og hófu und­ir­skrifta­söfnun gegn inn­leið­ingu regln­anna í íslenskan rétt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár