Nær 500 sagt upp í hópuppsögnum í mars

347 var sagt upp í hóp­upp­sögnum á Suð­ur­nesjum, en töpuð störf vegna gjald­þrots WOW air eru ekki inni í þeim fjölda.

Nær 500 sagt upp í hópuppsögnum í mars

Sex fyr­ir­tæki til­kynntu Vinnu­mála­stofnun um hóp­upp­sagnir í mars. Alls misstu 473 vinn­una í þeim upp­sögnum, þar af 347 á Suð­ur­nesjum. Töpuð störf vegna gjald­þrots WOW air eða ann­arra gjald­þrota eru ekki inni í þessum tölum.

Þetta kemur fram á vef Vinnu­mála­stofn­unar. Stærsta hóp­upp­sögnin var hjá Airport Association, en stórum hluta þeirra sem sagt var upp hefur verið boðin end­ur­ráðn­ing á öðrum kjörum. 13 var sagt upp störfum hjá öðru fyr­ir­tæki í starf­semi tengdri flutn­ingum og geymslu.

Hinar upp­sagn­irnar komar úr fjórum atvinnu­greinum. 46 var sagt upp í ferða­þjón­ustu, 37 í fram­leiðslu, 32 í bygg­inga­starf­semi og 30 í sér­fræði­legri, vís­inda­legri og tækni­legri starf­semi. Hóp­upp­sagn­irnar koma til fram­kvæmda á tíma­bil­inu maí til júlí 2019.

Í gær kom fram á Vísi að 33 starfs­mönnum Actavis yrði sagt upp á næstu mán­uðum. Fyrstu upp­sagn­irnar taka gildi um mán­aða­mótin en öðrum verður dreift yfir árið.

Engar til­kynn­ingar bár­ust Vinnu­mála­stofnun um hóp­upp­sagnir í febr­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár