Virði Icelandair í Kauphöllinni snarhækkar – og verð á flugmiðum líka

„Verð á flug­miðum mið­ast við eft­ir­spurn og síð­ustu daga og vikur hefur verið mikil ásókn í flug hjá okkur,“ segir í til­kynn­ingu frá Icelandair.

Virði Icelandair í Kauphöllinni snarhækkar – og verð á flugmiðum líka

Virði hluta­bréfa Icelandair Group hefur hækkað um tæp 13 pró­sent í Kaup­höll­inni í dag eftir að helsti sam­keppn­is­að­il­inn, WOW air, hætti starf­semi og aflýsti öllum flug­ferðum. Alls nemur velta hluta­bréfa í Icelanda­ir frá því í morgun 234 millj­ón­um króna. 

Um leið hefur flug­miða­verð Icelandair snar­hækkað – um allt að 200 pró­sent á örfáum dögum. 

Stundin ræddi við mann í morgun sem átti pant­aða aðra leið til Dublin 10. maí næst­kom­andi með WOW Air. Nú á mánu­dag­inn, 25. mars, kann­aði hann hvað flugið myndi kosta með Icelandair. Þá kost­aði flugið um 30 þús­und krónur. Hann ákvað að bíða átekta vegna frétta um að hugs­an­lega tæk­ist að bjarga Wow Air. Í morgun, þegar ljóst var að búið væri að loka WOW Air, ætl­aði hann að kaupa mið­ann hjá Icelandair. Þá  kom í ljós að verðið hafði hækkað í tæpar 90 þús­und krónur.

„Við viljum árétta að engar verð­breyt­ingar eru að eiga sér stað hjá Icelandair,“ segir í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. „Verð á flug­miðum mið­ast við eft­ir­spurn og síð­ustu daga og vikur hefur verið mikil ásókn í flug hjá okkur og nú vegna þeirra afslátt­ar­far­gjalda sem við erum að bjóða far­þegum WOW. Í ein­hverjum til­fellum eru ein­ungis sæti á efsta far­rými laus eða flug full­bókuð.“

Tilkynnt hefur verið um sér­stakan afslátt hjá Icelandair til þeirra sem áttu bókað sæti með WOW air næstu tvær vik­urnar auk þess sem áhafnir hins gjald­þrota flug­fé­lags verði aðstoð­aðar við að kom­ast heim þeim að kostn­að­ar­lausu. 

Um leið og virði hluta­bréfa í Icelandair hefur hækkað umtals­vert hefur virði flestra ann­arra félaga í Kaup­höll­inni lækkað. Mesta lækk­unin í morgun er hjá Högum, um 4,6 pró­sent, en þar á eftir koma fast­eigna­fé­lögin EIK og Reginn með tæp­lega 4 pró­senta lækkun á virði hluta­bréfa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár