Flugrekstrarleyfi WOW kann að verða afturkallað fyrr eða síðar vegna skulda

Sam­göngu­stofa er með rekstur WOW air til skoð­unar í dag líkt og alla aðra daga segir upp­lýs­inga­full­trúi. Stofn­unin getur tekið leyfi til að fljúga af félag­inu og þá getur það ekki rekið sig.

Flugrekstrarleyfi WOW kann að verða afturkallað fyrr eða síðar vegna skulda
Sam­göngu­stofa gæti aft­ur­kallað leyfið Sam­göngu­stofa gæti aft­ur­kallað flug­rekst­ar­leyfi WOW air. Skúli Mogensen er eig­andi og for­stjóri WOW air. Mynd: WOWAIR.IS

Flug­rekst­ar­leyfi WOW air kann að verða aft­ur­kallað vegna skulda félags­ins og bágrar fjár­hags­stöðu. Rík­is­stofn­unin Sam­göngu­stofa sér um veit­ingu og aft­ur­köllun flug­rekstr­ar­leyfa. Stundin gerði til­raun til að ná í Þórólf Árnason, for­stjóra Sam­göngu­stofu, til að spyrja hann um málið en ekki náð­ist í hann. 

WOW air rær nú líf­róður til að halda flug­fé­lag­inu í rekstri eftir að vonir um kaup banda­ríska flug­fé­lags­ins Indigo Partners á hlut í félag­inu runnu út í sand­inn fyrir helgi. Icelandair Group ákvað einnig að það væri ekki áhætt­unnar virði að taka yfir rekstur WOW air. Morg­un­blaðið greindi frá því í dag að WOW air hefði tapað 22 millj­örðum króna í fyrra, WOW air skuldar flug­völlum og flug­rekst­ar­að­ilum háar fjár­hæðir og félagið hefur ekki greitt líf­eyr­is­skuld­bind­ingar starfs­manna sinna um hríð.

WOW air lítur því út eins og fyr­ir­tæki sem stefnir í gjald­þrot ef ekki koma til nýir hlut­hafar með nýtt hlutafé, enda fóru sam­ein­ing­ar­við­ræð­urnar við Icelandair fram á þeim for­sendum að WOW air væri fyr­ir­tæki á „fallanda fæti“ en þá gilda aðrar sam­keppn­is­reglur um slíkan sam­runa en þegar um er að ræða sam­ein­ingu tveggja fjár­hags­lega heil­brigðra fyr­ir­tækja. 

Skúli Mogensen, eig­andi og for­stjóri WOW air, hefur hins vegar alltaf verið jákvæður og bjart­sýnn um fram­tíð WOW air, líka í gær þegar hann sagð­ist vera „ánægður með stöð­una“: „Ég er nátt­úru­lega bara hræður yfir ótrú­lega jákvæðum við­brögðum allra starfs­manna okkar. Þátttaka þeirra í þessu ævin­týri hefur verið stór­kost­leg. Það er mikil hvatn­ing og hugur í okkar fólki og ég er mjög þakk­látur fyrir það.“ Þrátt fyrir erf­ið­leika WOW air síð­ustu mán­uð­ina hefur Skúli alltaf talað með þessum hætti. 

Svarar hvorki af eða á

Þór­hildur Elín Elín­ar­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Sam­göngu­stofu, segir að hún geti ekki svarað því hvort sú vinna sé hafin hjá stofn­un­inni að aft­ur­kalla flug­rekstr­ar­leyfi WOW air. „Ég svara engu um ein­staka flug­rek­endur en ég get svarað því almennt séð að Sam­göngu­stofa hefur eft­ir­lit með fjár­hags­stöðu flug­rek­enda á hverjum tíma. Sam­göngu­stofa sinnir þessu eft­ir­liti í dag sem og aðra daga,“ segir Þór­hildur sem eins og áður segir svarar engu um það, af eða á, hvort þessi vinna sé hafin.

„Á grund­velli mats síns skal yfir­valdið
fella tíma­bundið úr gildi eða
aft­ur­kalla flug­rekstr­ar­leyfið“

Ef flug­fé­lag missir flug­rekstr­ar­leyfi sitt má það, eðli máls­ins sam­kvæmt, ekki fljúga eða stunda flug­rekstur. Starf­semi WOW air á Íslandi stendur því og fellur með flug­rekstr­ar­leyf­inu. Kjarninn full­yrðir, sam­kvæmt ótil­greindum heim­ildum, að Sam­göngu­stofa hafi gefið WOW air skamman frest til að tryggja rekstr­ar­grund­völl sinn. 

Geta veitt tímabundið leyfi

Í reglu­gerð­inni um flug­rekstr­ar­leyfi sem Sam­göngu­stofa vinnur eftir segir að stofn­un­inni sé heim­ilt að vega og meta fjár­hags­stöðu flug­fé­laga hverju sinni og eftir atvikum aft­ur­kalla flug­rekst­ar­leyfi þeirra.

„Lögbæru leyf­is­yf­ir­valdi er heim­ilt að meta, hvenær sem er, fjár­hags­stöðu þess flug­rek­anda í Banda­lag­inu sem það hefur veitt flug­rekstr­ar­leyfi. Á grund­velli mats síns skal yfir­valdið fella tíma­bundið úr gildi eða aft­ur­kalla flug­rekstr­ar­leyfið hafi það ekki full­vissu um að þessi flug­rek­andi í Banda­lag­inu geti staðið við raun­veru­legar skuld­bind­ingar og aðrar skuld­bind­ingar sem kann að vera stofnað til á tólf mán­aða tíma­bili. Lögbæru leyf­is­yf­ir­valdi er, engu að síður, heim­ilt að veita tíma­bundið leyfi, þó ekki lengur en í tólf mán­uði, á meðan fjár­hags­leg end­ur­skipu­lagn­ing fer fram hjá flug­rek­anda.“

Sam­göngu­stofa getur því farið þá leið að veita WOW tíma­bundið flug­rekstr­ar­leyfi ef stofn­unin metur það sem svo að hug­myndir félags­ins um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu séu trú­verð­ugar. Enn á eftir koma í ljós hverjar þessar hug­myndir eru en fram hefur komið í fjöl­miðlum að verð­bréfa­fyr­ir­tækið Arctica Finance vinni nú að því að reyna að finna nýja hlut­hafa til að koma að rekstri WOW air. Ef af þessu verður ekki mun Sam­göngu­stofa ekki heldur getað veitt WOW air tíma­bundið flug­rekstr­ar­leyfi fari svo að leyfið verði aft­ur­kallað. 

Ekki náð­ist í Svan­hvíti Frið­riks­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa WOW air við vinnslu frétt­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár