Fögnuðu fjöldamorðum á múslimum í athugasemdakerfi Vísis

49 manns voru myrtir í hryðju­verka­árás hægri öfga­manns í Christchurch á Nýja-Sjálandi í nótt. Vísir.is þurfti að loka fyrir ummæli undir frétt sinni vegna hat­urs­fullra við­bragða les­enda.

Fögnuðu fjöldamorðum á múslimum í athugasemdakerfi Vísis
Eftir árás­ina Hægri öfga­mað­ur­inn skaut einnig börn. Mynd: BBC/Youtube

Hægri öfga­maður frá Ástralíu myrti 49 manns og særði 20 til við­bótar í hryðju­verka­árás á tvær moskur í Christchurch á Nýja-Sjálandi. Árásin hefur verið for­dæmd um allan heim, en frétta­vef­ur­inn Vísir.is þurfti að loka á ummæli undir frétt sinni um árás­ina vegna þess að nafn­greindir Íslend­ingar fögn­uðu henni.

„Athuga­semda­kerf­inu hefur verið lokað við þessa frétt vegna hat­urs­fullra ummæla,“ segir í lok fréttar Vísis. 

Fögnuðu árásinniUmmæla­kerfi Vísis var lokað vegna við­bragða frá ákveðnum les­enum.

Meðal ummæla sem um ræðir eru tveir sem töldu að morðin væru rétt­læt­an­leg og æski­leg. „Vel gert. Þetta er sjálfs­vörn. Fólk er varla búið að gleyma hvað marga íslam hefur drepið í Evrópu,“ sagði einn þeirra. Ekki er hægt að stað­festa að um raun­veru­legan aðgang sé að ræða.

Annar sem fagnar árásinni opin­ber­lega er hins vegar búsettur á Sauð­ár­króki og hefur reglu­lega tjáð sig um múslima og inn­flytj­enda­mál.

Að sögn Íslend­ings sem býr í Christchurch bjóst eng­inn við slíkri árás þar.  Borgin sé ekki ólík Reykja­vík og þykir frið­sæl.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hafa sent Nýsjá­lend­ingum sam­úð­ar­kveðjur vegna árás­ar­innar.

Árás­armað­ur­innBrenton Tarrant framdi árás­ina í beinni útsend­ingu á Facebook.

Árás­armað­ur­inn, Brenton Tarrant, er ástr­alskur rík­is­borg­ari. Hann sendi frá sér 74 síðna stefnu­yf­ir­lýs­ingu þar sem hann lýsti aðdáun á norska hryðju­verka­mann­inum Anders Breivik og lof­aði meðal ann­ars Donald Trump Banda­ríkja­for­seta fyrir að vera „tákn end­ur­reistrar sjálfs­myndar hvítra og sam­eig­in­legs til­gangs“. 

Meðal þeirra sem berj­ast fyrir lífi sínu eftir árás­ina eru börn niður í fjög­urra ára aldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár