Stundin með þrjár tilnefningar til blaðamannaverðlauna og RÚV með fimm

Blaða­menn Stund­ar­innar eru til­nefndir til verð­launa fyrir umfjöllun um nálg­un­ar­bönn og eign­ar­hald á íslenskum jörðum og við­tal við Báru Hall­dórs­dóttur.

Stundin með þrjár tilnefningar til blaðamannaverðlauna og RÚV með fimm

RÚV er til­nefnt til fimm blaða­manna­verð­launa í þremur flokkum vegna árs­ins 2018 og Stundin til verð­launa í þremur flokkum. Kjarninn, Morg­un­blaðið, Mannlíf og Frétta­blaðið fá eina til­nefn­ing­una hver. Stundin fékk einnig þrjár til­nefn­ingar til blaða­manna­verð­launa í fyrra og var RÚV þá með fjórar.  

Freyr Rögn­valds­son og Steindór Grétar Jónsson eru til­nefndir í flokknum rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins fyrir umfjöll­un­ina Landið sem auð­menn eiga. Þar er rýnt í eign­ar­hald á íslenskum jarð­eignum og greint hvernig auð­menn, bæði íslenskir og erlendir, hafa sankað að sér landi und­an­farna ára­tugi.

Jóhann Páll Jóhanns­son er til­nefndur í flokknum við­tal árs­ins, fyrir við­tal sem hann tók við Báru Hall­dórs­dóttur, konu sem stödd var á Klaustri bar þann 20. nóv­em­ber, varð vitni að ógeð­felldum sam­ræðum þing­manna og ákvað að hljóð­rita þær og senda fjöl­miðlum.

Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir er til­nefnd fyrir umfjöllun sína um nálg­un­ar­bann þar sem rætt var við átta konur um reynslu þeirra og greint hvernig úrræðið hefur reynst bit­laus vörn gegn heim­il­is­of­beldi. 

Hér má sjá tilnefningarnar í heild:

Viðtal árs­ins

Jóhann Páll Jóhanns­son, Stund­inni
Fyrir við­tal við Báru Hall­dórs­dóttur sem steig fram í kjöl­far þess að hafa tekið upp hat­urs­orð­ræðu þing­manna á Klaust­ur­bar og sent fjöl­miðlum til úrvinnslu.

Milla Ósk Magn­ús­dóttir, RÚV
Fyrir við­tal við hjónin Stefán Þór Gunn­ars­son og Elísu Rós Jóns­dóttur sem misstu son sinn vegna ofneyslu fíkni­efna. Hjónin lýsa eigin úrræða­leysi og áfall­inu sem fylgdi and­lát­inu.

Ragn­heiður Linnet, Mannlífi
Fyrir við­tal við Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­faslase, ekkju plast­barka­þeg­ans, Andemariam Beyene, um aðdrag­anda ígræðsl­unnar og hvernig líf fjöl­skyld­unnar umturn­að­ist eftir þá örlaga­ríku aðgerð.

Rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins

Freyr Rögn­valds­son og Steindór Grétar Jónsson, Stund­inni
Fyrir umfjöll­un­ina Landið sem auð­menn eiga sem veitir ríka yfir­sýn yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu inn­lendra og erlendra auð­manna og inn­sýn í hverjir þeir eru.

Helgi Seljan, RÚV
Fyrir frétta­skýr­ingu um stöðu erlendra verka­manna og sjálf­boða­liða sem hingað koma, búa við bágar aðstæður og eru sviknir um laun.

Ingólfur Bjarni Sig­fús­son, RÚV
Fyrir frétta­skýr­ingu um um vopna­flutn­inga Air Atlanta og van­höld Sam­göngu­stofu á því að fram­fylgja sátt­málum um vopna­flutn­inga sem Ísland hefur full­gilt.

Umfjöllun árs­ins

Aðal­heiður Ámunda­dóttir, Frétta­blað­inu
Fyrir umfjöllun með fréttum og frétta­skýr­ingum um for­sögu, end­ur­upp­töku og eft­ir­mála Guð­mundar- og Geir­finns­mála.

Guðrún Hálf­dán­ar­dóttir, Morg­un­blað­inu/Mbl.is
Fyrir greina­flokk­inn Gætt að geð­heil­brigði um úrræði og úrræða­leysi þegar kemur að því að hjálpa fólki sem glímir við geð­sjúk­dóma og/eða fíkn.

Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir, Stund­inni
Fyrir umfjöllun með frá­sögnum átta kvenna sem opin­bera bit­leysi nálg­un­ar­banns sem úrræðis í heim­il­is­of­beld­is­málum.

Blaða­manna­verð­laun árs­ins

Sigríður Hall­dórs­dóttir, RÚV
Fyrir umfjöllun um óábyrga notkun plasts, þar sem sýnt er með slá­andi hætti hvernig það mengar umhverfið, neyslu­vatn okkar og mat­væli.

Viktoría Her­manns­dóttir og Þór­hildur Ólafs­dóttir, RÚV
Fyrir útvarps­þátta­röð­ina Kverka­tak þar sem lýst er birt­ing­ar­myndum heim­il­is­of­beldis frá sjón­ar­horni þolenda, aðstand­enda þeirra og sér­fræð­inga.

Þórður Snær Júl­í­us­son, Kjarn­anum
Fyrir bók­ina Kaupt­hink­ing sem dregur fram skýra mynd af hug­ar­fari og ólög­legum fjár­mála­gjörn­ingum innan Kaup­þings í aðdrag­anda banka­hruns­ins og afleið­ingum þeirra.

_____________________________________________
Fyr­ir­vari: Hér fjallar Stundin um mál er varðar mið­il­inn sjálfan með beinum hætti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár