Mynd: Heiða Helgadóttir

Mamma, er ég að deyja?

Hjörtur Elías Ágústs­son, sem er níu ára, greind­ist í febr­úar í fyrra með eitilfrumu­krabba­mein. Móðir hans, Íris Jóns­dóttir, segir frá þess­ari erf­iðu veg­ferð sem fjöl­skyldan fór saman. Íris, sem er ein­stæð þriggja barna móðir og öryrki, segir líka frá öðrum erf­ið­leikum í lífi sínu.

Ískaldur dagur. Það er nota­legt að koma inn úr kuld­anum í fjöl­býl­is­húsið þar sem Íris Jóns­dóttir heilsar hlý­lega. Inni í stofu situr glað­legur strákur í svörtum og rauðum stutt­erma­bol með mynd af stórri könguló framan á. Þetta er sonur hennar, Hjörtur Elías, sem er níu ára. Hann er með arm­band. Það er gert úr perlum og á þeim eru orðin FUCK CANCER.

Við setj­umst inn í stofu. Hjörtur Elías sest á milli okkar og blaðar af og til í bók þar sem eru myndir sem teknar hafa verið í veik­indum hans und­an­farið ár.

„Hann er sem betur fer ekki lengur inniliggj­andi í með­ferð,“ segir Íris og sýnir hvar leggur liggur inn í lík­ama Elíasar en þar hafa lyfin farið í gegn.

„Hjörtur Elías var alltaf frískur drengur,“ segir Íris með áherslu. „Þetta barn var aldrei lasið og var með pott­þéttar mæt­ingar í skóla. Hann varð mjög veikur í lok jan­úar í fyrra. Hann kastaði mikið upp og var illt í mag­anum og var orð­inn mjög fölur og mátt­laus.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár