Gróðurhús verður Zen-garður

Gróð­ur­hús­inu við Norræna húsið verður umbreytt í frið­sælan Zen-garð að jap­anskri fyr­ir­mynd meðan á Hönn­un­ar­mars stendur. Það eru Helga Kjerúlf og Halla Hákon­ar­dóttir sem standa að baki inn­setn­ing­unni ásamt Thomasi Pausz hönn­uði.

Gróðurhús verður Zen-garður
Fara mild­ari leið Þær Helga og Halla hafa í gegnum tíð­ina farið ýmsar leiðir til að vekja athygli á sóun í tísku­iðn­aði. Oft hafa þær verið háværar en í þetta sinn vilja þær koma skila­boð­unum mildi­lega til skila í japönskum Zen-garði við Norræna húsið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Í ár tekur hönn­un­arteymið sem stendur að baki USEE STUDIO, þær Helga Kjerúlf og Halla Hákon­ar­dóttir, þátt í Hönn­un­ar­mars í þriðja sinn. Í fyrri skiptin tvö beittu þær æpandi og ögrandi aðferðum til að koma ákalli sínu um nátt­úru­vernd og sjálf­bærni til skila. Í fyrra skiptið með tísku­reifi og í seinna skiptið með gerð lags og tón­list­ar­mynd­bands með því. „Fyrst vorum við með tísku­reif, þar sem við spil­uðum brjál­aða reif­tón­list og vörp­uðum á vegg myndum úr tísku­iðn­að­inum sem sýna hræði­lega offram­leiðslu. Í fyrra gerðum við svo lag um svita­verk­smiðjur í sam­starfi við mynd­listar- og tón­list­ar­kon­una Katrínu Helgu Andr­és­dóttur, betur þekkt sem Special-K, sem við frum­sýndum í Kringl­unni, sem var við­eig­andi.“

Mild róttækni

Nú líta þær til mild­ari aðferða með inn­setn­ing­unni Nectar & Ambrosia í gróð­ur­húsi Norræna húss­ins, sem þær vinna í sam­vinnu við Thomas Pausz hönnuð. „Við erum að vinna með vatnið, fyrst og fremst,“ útskýrir Helga og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár