Mynd: Davíð Þór

Börn hælisleitenda utanveltu í íslensku skólakerfi

Paul Ramses Odour segir að sér­stök deild fyrir börn hæl­is­leit­enda, flótta­manna og inn­flytj­enda gæti verið til bóta fyrir börn í þess­ari við­kvæmu stöðu, enda hafi hann þá reynslu að börnin verði utan­veltu í íslensku skóla­kerfi og standi ekki jafn­fætis íslenskum sam­nem­endum sínum. Sér­fræð­ingar telja þetta þó brot á lögum um skóla án aðgrein­ingar. Það ætti frekar að styrkja skól­ana til að taka betur á móti börnum í þess­ari stöðu.

Nú á dög­unum birt­ust fréttir þess efnis að stofna ætti nýja stoð­deild við Voga­skóla í Reykja­vík, fyrir börn hæl­is­leit­enda, flótta­fólks og í ein­hverjum til­vikum inn­flytj­enda. Deildin á að vera tíma­bundin lausn að hámarki níu mán­aða og á að sinna mót­töku og aðlögun barna í þess­ari stöðu ásamt því að veita sér­stakan stuðn­ing. Helga Helga­dóttir, deild­ar­stjóri sér­kennslu í Voga­skóla, sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV á dög­unum að hún telji stofnun deild­ar­innar brjóta í bága við lög um grunn­skóla og Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Lögin segja til um að á grunn­skóla­stigi eiga allir nem­endur rétt á að stunda skyldu­nám í almennum grunn­skólum án aðgrein­ingar.“

Paul Ramses Odour, sem var veitt hæli á Íslandi 2010 og á nú börn í íslenska skóla­kerf­inu, segir þó að slík sér­deild gæti verið til bóta fyrir börn í þess­ari stöðu. Það byggir hann á reynslu sinni af íslenska skóla­kerf­inu. 

Streitan …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár