Tvöfalda þarf fjölda lækna á heilsugæslunni

Formaður Félags heilsu­gæslu­lækna segir heilsu­gæsl­una ekki nútíma­fólki bjóð­andi.

Formaður félags heilsu­gæslu­lækna segir skort vera á heilsu­gæslu­læknum víða um land. Staðan sé ekki nútíma­fólki bjóð­andi.

„Það er skortur á heilsu­gæslu­læknum á stórum svæðum úti á landi. Hún er brota­kennd og það er stóra vanda­málið. Það er verið að redda mál­unum með af leys­ingum til skamms tíma og er eig­in­lega ekki nútíma­fólki bjóð­andi,“ segir Salóme Ásta Arn­ar­dóttir, for­maður Félags heilsu­gæslu­lækna, við Frétta­blaðið í dag.

Salóme segir að heilsu­gæslu­læknar séu nú um 200 á land­inu en þyrftu að vera 400 til að stand­ast sam­an­burð við Norð­ur­löndin. Segir hún vanta fjár­magn frá hinu opin­bera til þess að hægt verði að fjölga nemum í heilsu­gæslu­lækn­ingum.

„Við erum um 200 núna og á sama tíma erum við að útskrifa um átta á ári og helm­ingur heilsu­gæslu­lækna hættir á næsta ára­tug vegna ald­urs,“ segir Salóme. „Það eru ein­stak­lingar sem vilja vera heim­il­is­læknar en það er bara ekki pláss fyrir fleiri en 40 nema í einu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár