James Ratcliffe flytur til Mónakó til að sleppa við skatta

Ríkasti maður Bret­lands, James Ratcliffe, vill losna við allt að 4 millj­arða punda í skatta. Hann hefur verið umsvifa­mik­ill í jarða­kaupum á Norð­aust­ur­landi.

James Ratcliffe flytur til Mónakó til að sleppa við skatta

James Ratcliffe, rík­asti maður Bret­lands og land­eig­andi á Norð­aust­ur­landi, hyggst flytja lög­heim­ili sitt til Mónakó til þess að sleppa við 4 millj­arða punda í skatt­greiðslur.

Samkvæmt Sunday Times njóta Ratcliffe og tveir við­skipta­fé­lagar hans hjá efna­fram­leiðsluris­anum Ineos aðstoðar end­ur­skoð­enda PwC við áformin. Fjöldi breskra þing­manna hefur gagn­rýnt Ratcliffe fyrir að vilja sleppa við greiðslur, enda hafi hann sem for­stjóri Ineos beitt sér gagn­vart stjórn­völdum fyrir lægri umhverf­is­sköttum og veik­ari reglu­gerðum þegar kemur að gasvinnslu með vökva­broti (e. fracking).

Árið 2010 flutti Ratcliffe höf­uð­stöðvar Ineos frá Bret­landi til bæj­ar­ins Rolle í Sviss. Fyr­ir­tækið hafði beðið bresk stjórn­völd um frest til þess að greiða 350 millj­óna punda virð­is­auka­skatts­greiðslu, en ekki fengið. Fyr­ir­tækið sneri til baka árið 2016. Ratcliffe er mik­ill stuðn­ings­maður Brexit og segir að Bretland geti átt frá­bæra fram­tíð utan Evr­ópu­sam­bands­ins.

Ratcliffe hefur verið mikið til umfjöll­unar vegna jarða­kaupa sinna á Norð­aust­ur­landi. Hefur hann ásamt við­skipta­fé­lögum sínum keypt upp tugi jarða, með það að mark­miði að eign­ast veiði­rétt í lax­veiðiám. Ratcliffe hefur lýst því yfir að mark­miðið sé að vernda við­kvæmt vist­kerfi ánna og hefur tals­vert verið gert til að bæta lax­gengi í þeim.

Ratcliffe hefur lánað félagi sínu, Halicilla Limited Company, 9,7 millj­ónir breskra punda, að and­virði 1,3 millj­arða króna, til fjár­fest­inga. Félagið á net íslenskra eign­ar­halds­fé­laga sem keypt hafa upp jarðir á Norð­aust­ur­landi, meðal ann­ars Gríms­staði á Fjöllum. Lánið er vaxta­laust og sam­kvæmt árs­reikn­ingi Halicilla mun Ratcliffe ekki sækj­ast eftir end­ur­greiðslu á lán­inu.

Und­an­farin ár hefur Ineos styrkt stöðu sína í olíu­iðn­að­inum með umsvifum í Noregi og Danmörku. Nýlega var til­kynnt um við­ræður fyr­ir­tæk­is­ins við olíu­fé­lagið ConocoPhillips um kaup á olíu- og gasauð­lindum í Norð­ur­sjó að verð­mæti um 370 millj­arða íslenskra króna. Varða þau kaup á olíu- og gaslind­unum Clair, um 75 kíló­metrum vestan Hjaltlandseyja, og Britannia, um 210 kíló­metrum norð­austur af Aberdeen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár