Framboð á fasteignum eykst verulega

24 þúsund fasteignir voru auglýstar til sölu í fyrra, nær 50% fleiri en árið á undan. Meðal­sölutími þeirra helst óbreyttur.

24 þúsund fasteignir voru auglýstar til sölu á öllu landinu árið 2018. Þetta er 47% aukning frá árinu á undan, en þá voru rúmlega 16 þúsund fasteignir auglýstar. Ljóst er því að framboð fasteigna jókst verulega á sama tíma og sölutími hélst nokkurn veginn óbreyttur.

Þetta kemur fram í nýrri mánaðar­skýrslu Íbúða­lánasjóðs. Sölutími íbúða á höfuð­borgar­svæðinu breyttist lítið frá fyrra ári, en utan höfuð­borgar­svæðisins hefur hann styst, bæði hvað varðar sérbýli og fjölbýli. Í fyrra var tíminn sem tók að selja íbúð í fjölbýli utan höfuð­borgar­svæðisins um 100 dagar, miðað við 270 árið 2015.

Þá segir í skýrslunni að leiguverð hafi hækkað meira en íbúðaverð undan­farið samkvæmt þing­lýstum samningum. Leiguverð hækkaði um 8,2% á milli ára en söluverð um 6,2% á höfuð­borgar­svæðinu. Laun hækkuðu á sama tíma um 6,5% að meðaltali. Loks segir að 7000 íbúðir séu í byggingu þessa dagana, þar af 5000 á höfuð­borgar­svæðinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár