Tekur mál­stað þeirra sem enga rödd hafa Magga Stína segir að sér sé skylt að taka að sér að tala máli þeirra sem minna mega sín, núna þegar hún sjálf hefur safna þreki og dug. Mynd: Davíð Þór

„Núna get ég risið undir sjálfri mér“

Tónlistar­konan brosandi, Magga Stína, flæktist í neti ótta og ofbeldis og var í mörg ár aðeins skugginn af sjálfri sér. Það tók hana langan tíma að púsla sér saman að nýju og hún er enn að vinna í sjálfri sér en stendur nú upprétt. Því telur hún sér bera skyldu til að taka á sig byrðar fyrir aðra sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér.

Margrét Kristín Blöndal er aldrei kölluð annað en Magga Stína og Íslendingar þekkja hana vel flestir, þessa stelpu­legu konu sem virðist alltaf brosandi, full af gleði, lífs­krafti og skapandi, frjórri hugsun. Og víst er Magga Stína full af lífs­krafti og gleði. En þrátt fyrir að hún birtist okkur brosandi og glöð í fjöl­miðlum hefur Magga Stína þurft að takast á við erfið­leika í lífinu, reiði og uppreisn, ofbeldi, blankheit og basl. 

Magga Stína á ýmiss konar reynslu að baki, meðal annars átti hún um tíma í sambandi við mann sem beitti ótta­stjórnun og ofbeldi í þeirra sambandi. Hún lýsir því sem svo að hún hafi flækst í net, brotist þar um, ekki verið með sjálfri sér. „Ég gekk í raun og veru einhvern veginn við hliðina á sjálfri mér á þessum tíma, eins og skugginn af sjálfri mér. Hress, brosandi, harðduglegur skuggi sem hafði að mörgu leyti misst …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár