Helmingur lækna íhugað að láta af störfum

Læknar á Íslandi berj­ast við ofur­á­lag og kulnun í starfi, sam­kvæmt nýrri rann­sókn.

Helmingur lækna íhugað að láta af störfum

Mikill meiri­hluti lækna telur sig vera undir of miklu álagi og hefur helm­ingur þeirra íhugað að láta af störfum. Þetta kemur fram í könnun sem var gerð á meðal ríf­lega helm­ings allra lækna á Íslandi. Frétta­blaðið greinir frá.

Ólafur Þór Ævarsson geð­læknir stýrði rann­sókn­inni, sem verður kynnt í dag á Lækna­dögum. „Við vissum það svo sem fyrir fram að læknar væru undir álagi en þarna er spurt um þetta á mark­vissan hátt,“ segir Ólafur Þór. „Læknar eru undir gríð­ar­legu álagi og þeir finna fyrir ein­kennum sem eru trufl­andi eins og kvíða, dep­urð og ein­beit­ing­ar­trufl­unum. Það eru auð­vitað merki um ofur­á­lag og í sumum til­fellum kulnun.“

Ekki var mik­ill munur á milli lækna eftir starfs­stöðvum. Töldu lækn­arnir að 72 pró­sent starfs­stöðva þeirra væru und­ir­mann­aðar. „Margir læknar eru undir miklu álagi og margir hug­leiða það að hætta eða reyna að skipta um starf og þá er ekki um margt annað að ræða en að fara til útlanda,“ segir Ólafur Þór. „Það eru ekki margir vinnu­staðir fyrir alla þá sem eru mjög sér­hæfðir og svo er heldur ekki auð­velt að færa sig um set innan kerf­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár