Mynd: Davíð Þór

Bára fékk þakklætisorðu og tugir mættu í dómshúsið til að sýna henni stuðning

Þingmenn vilja að Báru verði refsað og hún látin greiða sekt og miska­bætur. Fjöldi fólks mætti í dóms­húsið til að sýna henni stuðn­ing. Þing­menn­irnir sem ætla að stefna henni létu ekki sjá sig, en Reimar Pét­urs­son hæsta­rétt­ar­lög­maður mætti fyrir þeirra hönd.

Bára Hall­dórs­dóttir, 42 ára öryrki sem hljóð­rit­aði háværar sam­ræður þing­manna á Klaustri bar þann 20. nóv­em­ber, er mætt í Hér­aðs­dóm Reykja­víkur ásamt lög­mönnum sínum, Ragnari Aðal­steins­syni og Auði Tinnu Aðal­bjarn­ar­dóttur, vegna fyr­ir­hug­aðs mála­rekst­urs fjög­urra þing­manna gegn henni. 

Gunnar Bragi Sveins­son, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­menn Mið­flokks­ins, vilja að Bára sæti refs­ingu og greiði þeim miska­bætur vegna „njósn­a­að­gerðar“ sem þeir segj­ast hafa orðið fyrir. Þá vilja þeir einnig að Per­sónu­vernd sekti Báru. Þetta er ljóst af bréfum sem lög­maður þing­mann­anna hefur sent Per­sónu­vernd og hér­aðs­dómi. 

Ljóst er að Bára nýtur tals­verðs stuðn­ings í sam­fé­lag­inu. Boðað hefur verið til sam­stöðu­fundar í dóms­hús­inu meðan þing­fest­ingin fer fram.

Bára leit við á rit­stjórn­ar­skrif­stofu Stund­ar­innar áðan og tók við litlum glaðn­ingi sem barst rit­stjórn­inni á dög­unum, eins konar þakk­læt­is­orðu sem ætluð var henni. Maðurinn sem lét smíða grip­inn vildi ekki láta nafns síns getið eða beina athygl­inni að sjálfum sér, en bað um að Báru yrði færð orðan með þakk­lætis- og kær­leiks­kveðju. 

Tugir manna eru saman komnir í dóms­hús­inu þegar þetta er ritað. Þing­menn­irnir fjórir létu ekki sjá sig en lög­maður þeirra, Reimar Pét­urs­son, mætti fyrir þeirra hönd.

Jón Gnarr leit viðJón Gnarr lét sjá sig í dóms­hús­inu, en hann hefur boð­ist til að setja af stað söfnun Báru ef þess þarf.

Bára ásamt verj­endum sínum, Ragnari Aðal­steins­syni og Auði Tinnu Aðal­bjarn­ar­dóttur af Rétti.

Fjöldi fólks safn­að­ist saman til að sýna Báru stuðn­ing.

Bára spjall­aði við stuðn­ings­liðið.

Fulltrúi þing­mannaReimar Pét­urs­son lög­maður mætti fyrir hönd þing­mann­anna en þeir létu ekki sjá sig.
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttirborg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, var við­stödd.
Bára er hæstá­nægð með þakk­læt­is­orð­una.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár