Ungmennum með fíknivanda hafnað - „Við erum að tala um BÖRN!!“

Félags­ráðgjafi gagnrýnir Íbúa­samtök Norðlinga­holts harðlega fyrir að mótmæla vist­heimili fyrir ungmenni með fíkni­vanda. „Hinn sanni jólaandi sýnir sig hér rækilega í verki.“

Félags­ráðgjafi gagnrýnir harðlega lögbann á vist­heimili í Norðlinga­holti fyrir ungmenni með fíkni­vanda. Segir hún fólk tjá sig stöðugt um mikilvægi þess að hjálpa fólki með fíkni­vanda, en úrræðunum sé svo mótmælt þegar þau bjóðast í næsta nágrenni við heimili þeirra.

„Hvert erum við eiginlega komin í árslok ársins 2018 þegar að vald og skoðanir tiltekinna einstaklinga og íbúa geta orðið þess valdandi að börnum er úthýst úr viðkomandi hverfi!“ skrifar Sigrún Þórarins­dóttir félags­ráðgjafi á Facebook.

Sýslu­maður samþykkti fyrir viku lögbann á vist­heimilið, en til stóð að starfsemi þess mundi hefjast á næstu vikum. Lögbannið var sett á að beiðni íbúa í nágrenninu sem höfðu samband undir nafni Íbúa­samtaka Norðlinga­holts. Tugir íbúa í Norðlinga­holti skrifuðu í kjölfarið undir yfir­lýsingu þar sem lögbanninu er mótmælt.

„Hinn sanni jólaandi sýnir sig hér rækilega í verki,“ skrifar Sigrún. „Það heimta allir úrræði fyrir börn í vanda. Fólk tjáir sig og deilir stöðu­uppfærslum á samfélags­miðlum þar sem allir eru svo sammála um mikilvægi þess að hafa tiltæk úrræði, það sé til skammar að við séum að missa börn þessa lands og nánast í hverri viku má lesa minningar­greiningar eða dánar­tilkynningar um ungmenni og ungt fólk sem hefur fallið frá vegna fíkni­vanda. En svo þegar úrræðið er tiltækt þá sannast hin marg­kveðna hræsni: NOT IN MY BACKYARD.“

Sigrún segist sjálf hafa misst fjölskyldu­meðlim sem glímdi við fíkni­vanda og að hún hafi ekkert umburðar­lyndi gagnvart þröngsýni og fordómum í garð barna. „Við skulum vona að ekkert barn þeirra aðila sem lögðust gegn því að heimilið gæti tekið til starfa muni nokkurn tímann þurfa á sambærilegu úrræði að halda því það verður hvergi velkomið,“ skrifar hún.

Færsla Sigrúnar í heild sinni

Íbúa­samtök eru frábær og flottur vettvangur til þess að huga að nærumhverfi þeirra sem í tilteknu hverfi eða svæði búa. Stuðla að framförum, sum sinna jafnvel nágranna­vörslu, FB síðurnar er frábær leið til að koma upplýsingum um viðburði á framfæri eða bara hreinlega auglýsa eftir týndum gæludýrum eða fótbolta­hönskum sem gleymdust úti á vellinum. Stór hverfi þar sem nánast enginn þekkir neinn verður því frekar heimilislegt og allir vilja allt fyrir alla gera…eða hvað?

Hvert erum við eiginlega komin í árslok ársins 2018 þegar að vald og skoðanir tiltekinna einstaklinga og íbúa geta orðið þess valdandi að börnum er úthýst úr viðkomandi hverfi! Við erum ekki að tala um fullorðna einstaklinga sem eru metnir hættu­legir sér eða öðrum, við erum ekki að tala um einstaklinga sem haldnir eru barna­girnd eða almennri ofbeldis­hegðun eða ógn í garð annarra. Við erum að tala um BÖRN!!

Smá fróð­leikur til íbúa í öllum hverfum þessa lands:
• Börn eru skilgreind börn til 18 ára aldurs.
• Börn eiga rétt á vernd og öryggi. Við þurfum að tryggja þeim sem hagstæðustu uppeldis­skilyrði hverju sinni og tryggja þeim aðgengi að þeim björgum og úrræðum sem þau þurfa á að halda.
• Börn sem þurfa á aðstoð að halda til þess að fóta sig áfram í lífinu eftir fíkni­vanda, hafa mögulega búið við ömurleg uppeldis­skilyrði frá blautu barns­beini og aðstæður sem fólk getur varla ímyndað sér að sé til staðar á þessu krúttlega landi okkar. Þessi börn eiga skilið sömu tækifæri og öll hin börnin til þess að fóta sig.
• Það er börnum aldrei fyrir bestu að dvelja lengi eða alast upp í stofnana­væddu úrræði. Þau þurfa að alast upp í umhverfi sem er eins líkt heimili í alla staði. Stundum er það ekki hægt en þá er mikilvægt að reyna amk. að útbúa aðstæður sem kallast þeirra heimili til þess að hjálpa þeim að fóta sig í lífinu, ná bata, halda sér edrú og verða virkir samfélags­þegnar þessa lands en fyrst og fremst að þau lifi áfram!
• Á hvaða rökum er þessi ákvörðun tiltekinna einstaklinga byggð? Liggur það fyrir að þessi 2-3 ungmenni sem þarna gætu dvalist og hafa verið EDRÚ í góðan tíma muni murka lífið úr krökkunum í hverfinu, ógna þeim daglega, ræna og rupla eða reyna að fá leik­skólabörnin inn á braut fíkni­sjúkdóma? 
• Hversu margir ofbeldis­menn eða konur búa mögulega í næsta húsi við þig og þú hefur ekki hugmynd um það?
• Hversu mörg börn búa við fíkni­vanda foreldra sinna en út á við í hverfinu er þetta fínasta fólk og enginn segir, veit eða gerir neitt?
• Hversu mörg börn, ungmenni og fullorðið fólk búa nú þegar í þínu hverfi og þjást af einhvers konar geðröskun hversu væg eða alvarleg sem hún er?
• Hversu margir íbúar hafa “lækað” allann þann fjölda minningar­síða sem hafa sprottið upp vegna ungmenna sem hafa fallið frá vegna vímuefna­vanda og notkunar á lyfseðils­skyldum lyfjum sem nú tröllríður öllu?
• Hversu margir aðilar og íbúar þessa lands þekkja sjálf einhvern sem hefur misst barn, ungmenni, ungt fólk, fullorðið fólk eða gamalt fólk úr fíkni­sjúkdómi?
• Hversu margir íbúar og þegnar þessa lands hafa keypt frábæru flottu bleiku armböndin til styrktar málefnum sem vilja bregðast við ofan­greindum vanda fyrir ungmenni þessa lands?

Hinn sanni jólaandi sýnir sig hér rækilega í verki. Það heimta allir úrræði fyrir börn í vanda. Fólk tjáir sig og deilir stöðu­uppfærslum á samfélags­miðlum þar sem allir eru svo sammála um mikilvægi þess að hafa tiltæk úrræði, það sé til skammar að við séum að missa börn þessa lands og nánast í hverri viku má lesa minningar­greiningar eða dánar­tilkynningar um ungmenni og ungt fólk sem hefur fallið frá vegna fíkni­vanda. En svo þegar úrræðið er tiltækt þá sannast hin marg­kveðna hræsni:

NOT IN MY BACKYARD.

Setjið ykkur í spor þessara barna. Þau hafa aðgang að samfélags­miðlum. Þau sjá fréttirnar. Skila­boðin sem samfélagið sendir þeim er einfalt: Þið eruð ekki velkomin/n!!!

Kveðja frá félags­ráðgjafa, fyrrum barna­verndar­starfsmanni, móður tveggja barna, aðstand­anda sem hefur misst fjölskyldu­meðlim sem glímdi við fíkni­vanda, aðstand­anda óvirkra einstaklinga með fíkni­vanda en fyrst og fremst kveðja frá manneskju sem hefur ekkert umburðar­lyndi gagnvart þröng­sýnum hópi fólks sem byggir skoðanir sínar á skort á upplýsingum og gríðar­legum fordómum í garð barna. Við skulum vona að ekkert barn þeirra aðila sem lögðust gegn því að heimilið gæti tekið til starfa muni nokkurn tímann þurfa á sambærilegu úrræði að halda því það verður hvergi velkomið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár