George H.W. Bush: Ræfilslegi njósnarinn sem varð forseti

Fyrr­verandi Bandaríkja­forseti var vellauðugur útsendari bandarísku leyni­þjónustunnar.

George Herbert Walker
George Herbert Walker Tekur við spurn­ingum í Hvíta Húsinu 1988. Mynd: Shutterstock

Stjórn­málamenn og fjöl­miðlar vestanhafs hafa keppst við að mæra George Herbert Walker Bush eftir að hann féll frá á dögunum. Forsetinn fyrr­verandi sat aðeins eitt kjör­tímabil, frá 1989 til 1993, en það var á hans vakt sem austur­blokkin hrundi endanlega og margir Þjóð­verjar þakka honum hve greiðlega gekk að endur­sameina Þýskaland þrátt fyrir andstöðu Breta og Frakka við þau áform. 

Það er þó fyrst og fremst í samhengi við núverandi forseta sem flestir sjá Bush í hillingum. Á milli línanna í minningar­greinum má lesa harða gagnrýni á Donald Trump þar sem talað er um að Bush hafi verið hófsemdar­maður og sameiningar­tákn. Það séu eigin­leikar sem margir sakni í dag.

Veikleikar forsetans

Á meðan hann var á lífi voru ummælin önnur. Fjöl­miðlar voru mjög uppteknir af veik­leikum forsetans; hann þótti koma illa fyrir og hafa ræfils­legan talanda. Þótti jafnvel pempraður yfirstéttar­maður úr tengslum við raun­veruleikann. 

Birtar voru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár