Katrín Jakobsdóttir til liðs við alþjóðlega vinstrihreyfingu Bernie Sanders og Yanis Varoufakis

„Hleypa þarf lífi í alþjóð­lega sam­vinnu á vinstri vængnum til að draga megi úr félags­legum og efna­hags­legum ójöfn­uði, gera breyt­ingar á hinu alþjóð­lega fjár­mála­kerfi, snúa frá vopna­kapp­hlaup­inu og stöðva lofts­lags­breyt­ingar,“ segir hún.

Katrín Jakobsdóttir til liðs við alþjóðlega vinstrihreyfingu Bernie Sanders og Yanis Varoufakis

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur þegið boð Bernie Sanders og Yanis Varoufakis um að taka þátt í stofnun alþjóð­legu hreyf­ing­ar­innar Progressive International. Þessu greinir hún frá á Facebook.

Banda­ríski þing­mað­ur­inn Bernie Sanders bauð sig fram í for­vali Demókra­ta­flokks­ins fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2016 og er einn vin­sæl­asti stjórn­mála­maður Banda­ríkj­anna. Yanis Varoufakis er fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands  og fram­bjóð­andi til Evr­ópu­þings­ins. Í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar er að finna ítar­legt við­tal við hann um Evr­ópu­sam­bandið, evr­una og fram­tíð rót­tækra stjórn­mála. 

„Þátttaka mín grund­vall­ast á tveimur þáttum,“ segir Katrín um sam­starf sitt við Berine Sanders og Yanis Varoufakis. „Í fyrsta lagi tel ég afar mik­il­vægt að bregð­ast í sam­ein­ingu við upp­gangi vald­boðs­hyggju í heim­inum, sem er bein ógn við lýð­ræði og mann­rétt­indi, auk þess að grafa undan horn­steinum lýð­ræð­is­ins á borð við rétt­ar­kerfið og sjálf­stæða fjöl­miðlun. Í öðru lagi vil ég styðja við þá jákvæðu sýn sem liggur Progressive International til grund­vallar, það er bar­áttan fyrir almennri vel­ferð, öryggi og reisn fyrir allt fólk.“

Þá segir hún að hleypa þurfi lífi í alþjóð­lega sam­vinnu á vinstri vængnum til að draga megi úr félags­legum og efna­hags­legum ójöfn­uði, gera breyt­ingar á hinu alþjóð­lega fjár­mála­kerfi, snúa frá vopna­kapp­hlaup­inu og stöðva lofts­lags­breyt­ingar.

„Nýr alþjóð­legur sátt­máli (International New Deal) gefur fyr­ir­heit um að þarfir venju­legs fólks og jað­ar­settra hópa verði sett í önd­vegi og að um leið höfnum við stjórn­málum sem hag­nýta efna­hags­legt óör­yggi til að kynda undir útlend­inga­andúð, kyn­þátta­hyggju, kven­hatri og menn­ing­ar­legum ras­isma,“ segir Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár