Segir ranglega að „brotist hafi verið inn í síma“ og vill aðgerðir gegn fjölmiðlum

Hegðun og orða­skipti þing­manna á Klaustri Bar vöktu athygli. Sig­mundur Davíð segir að hljóð­ritun hljóti að hafa farið fram með inn­broti á síma eða „hler­un­ar­bún­aði“. Stundin ræddi við vitni og hér má sjá myndir af aðstæðum og mynd­band af þing­mönnum yfir­gefa stað­inn.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Mið­flokks­ins, kallar eftir því að gripið verði til aðgerða gegn fjöl­miðlum vegna frétta Stund­ar­innar og DV af orða­skiptum þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins á Klaustri Bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

„Alvar­leg­ast er þó ef raunin er sú að á Íslandi sé farið að stunda hler­anir á einka­sam­tölum stjórn­mála­manna. Hafi verið gerð hljóð­upp­taka af fundi þeirra sex þing­manna sem þar eru nefndir hlýtur það að telj­ast alvar­legt mál,“ skrifar Sig­mundur Davíð á Facebook.

„Hópurinn sem vísað er til sat einn úti í horni og því ekki um annað að ræða en að brot­ist hafi verið inn í síma ein­hvers þeirra sem þarna voru staddir eða beitt hler­un­ar­bún­aði.“

Eins og fram kemur í fréttum Stund­ar­innar voru þing­menn­irnir háværir og fóru orða­skipti þeirra fram í vitna við­ur­vist. Einn við­staddra ákvað að hljóð­rita sam­skiptin og sendi Stund­inni upp­töku. Þá náð­ist mynd­bands­upp­taka af því þegar þing­menn yfir­gáfu stað­inn, sjá hér að neðan:

Þingmenn yfir­gefa Klaustur Bar

Vitni sem Stundin ræddi við sagði að sér hefði blöskrað hvernig þing­menn­irnir töl­uðu og ákveðið að kveikja á hljóð­rit­unar-appi í sím­anum sínum.

Eftir að Stundin hóf frétta­flutn­ing­inn í gær­kvöldi barst svo mynd frá öðrum aðila sem tekin var fyrir utan stað­inn, en látæði þing­mann­anna vakti nokkra athygli í miðbæ Reykja­víkur þetta kvöld.

Sig­mundur ber málið saman við sím­hler­un­ar­hneykslið sem skók Bretland fyrir nokkrum árum.

„Ég man ekki eftir dæmi um slíkt [hljóð­rit­un­ina og frétta­flutn­ing­inn, inn­skot blaða­manns] í íslenskri stjórn­mála­sögu og aðeins einu dæmi frá Bret­landi. Það var þegar útsend­arar blaðs­ins News of the World hler­uðu sím­töl stjórn­mála­manna og ann­ars þekkts fólks. Það athæfi var litið alvar­legum augum og gripið til aðgerða í sam­ræmi við það. Ég vona að sú verði raunin á Íslandi líka. Annars eru Íslensk stjórn­mál og íslenskt sam­fé­lag gjör­breytt.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár