Fimmta hver kona tekur þunglyndislyf

Ísland sker sig úr á alþjóða­vísu með mik­illi notkun þung­lyndis- og svefn­lyfja. Tvöfalt meira er notað hér af þung­lynd­is­lyfjum en með­al­tal OECD. Lang­tíma­notkun á svefn­lyfjum er einnig áhyggju­efni.

Fimmta hver kona tekur þunglyndislyf

Á síð­asta ári fékk 18% kvenna á Íslandi ávísað þung­lynd­is­lyfjum. Það sama á við um 10% karla. Íslend­ingar nota tvö­falt meira af þung­lynd­is­lyfjum en með­al­tal OECD og 24% meira en næsta OECD þjóð. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Mest aukn­ing var á notkun þung­lynd­is­lyfja hjá konum á aldr­inum 15 til 40 ára. 31 þús­und konur leystu út þung­lynd­is­lyf í fyrra og 17 þús­und karlar. Ísland skeri sig úr á alþjóða­vísu og er notkun Íslend­inga á bæði þung­lyndis- og svefn­lyfjum í sögu­legu hámarki.

Lang­tíma­notkun á svefn­lyfjum er einnig áhyggju­efni Embættis land­læknis. Af 27 þús­und manns sem fengu ávísað svefn­lyfjum árið 2003 var rúmur þriðj­ungur enn að fá svefn­lyf árið 2017. „Okkar áhyggju­efni er hversu margir eru á þessum lyfjum og virð­ast vera að fest­ast á þessum lyfjum í langan tíma,“ segir Ólafur B. Ein­ars­son, verk­efn­is­stjóri lyfja­mála hjá Embætti land­læknis um svefn­lyfin.

Rann­sóknir stað­festa skað­semi lang­tíma­notk­unar svefn­lyfja, en oft er ráð­lögð notkun ekki nema tvær til fjórar vikur. Margir noti þau um ára­bil og segir Ólafur að hættan sé að fólk ánetj­ist þeim. Árið 2016 not­uðu Íslend­ingar 37% meira af svefn­lyfjum en næsta Norð­ur­landa­þjóð.

Læknar fengu árið 2016 aðgang að lyfja­gagna­grunni í raun­tíma. Með notkun hans sé hægt að sporna gegn aukn­ing­unni. „Ráp milli lækna ætti því ekki að vera mikið vanda­mál en við sjáum það enn vera vanda­mál með þessi ávana­bind­andi lyf,“ segir Ólafur. „Ef fólk fær ekki lyfin sín getur það brugð­ist við á ýmsan hátt. Við fáum upp­lýs­ingar frá læknum um að þeir verði fyrir ógn­unum í sínu starfi og fólk sækir mjög stíft að fá þessi lyf og halda þessum skömmtum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands
FréttirHeilbrigðismál

Banda­rískt fjár­fest­ing­ar­fé­lag eign­ast eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár