Matvælastofnun hefur ekki veitt upplýsingar um slysasleppingar hjá Arnarlaxi

Arnarlax sendi Mat­væla­stofnun upp­lýs­ingar um slysa­slepp­ingar hjá fyr­ir­tæk­inu í júlí. Mat­væla­stofnun hefur ekki viljað veita upp­lýs­ingar um slysa­slepp­ing­arnar þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir. Fimm göt komu á eld­is­kví í Tálkna­firði með þeim afleið­ingum að eld­is­fiskar komust út í nátt­úr­una.

Matvælastofnun hefur ekki veitt upplýsingar um slysasleppingar hjá Arnarlaxi
Slysa­slepp­ing­arnar liggja ekki fyrir Slysa­slepp­ing­arnar úr lax­eld­is­kví Arnarlax í Tálkna­firði í júlí liggja ekki fyrir. Arnarlax er búið að senda upp­lýs­ing­arnar til Mat­væla­stofn­unnar, opin­berrar eft­ir­lits­stofn­unar, sem hefur ekki enn veitt stund­inni þær þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir þar um.

Mat­væla­stofnun hefur ekki veitt upp­lýs­ingar um hversu margir laxar sluppu úr eld­is­kví hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arn­ar­laxi í Tálkna­firði sem fimm göt komu á í júlí í sumar. Fjöldi laxa sem voru um 3,5 kíló að stærð sluppu út um götin en ekki hefur verið greint frá því hversu margir þeir voru. Strax eftir að götin upp­götv­uð­ust voru sett út net til að veiða laxa sem mögu­lega sluppu úr kvínni og veidd­ust fimm eld­is­laxar í umrædd net. Síðan þá hefur ekk­ert spurst út um hversu margir laxar sluppu en 150 þús­und eld­is­laxar voru í kvínni þegar götin komu á hana. Arnarlax slátr­aði úr umræddri kví fyrir nokkrum vikum síðan, sam­kvæmt stjórn­ar­for­manni fyr­ir­tæk­is­ins, Kjartani Ólafs­syni, og sendi Mat­væla­stofnun í kjöl­farið upp­lýs­ingar um hversu margir laxar hefðu verið í kvínni þegar slátrað var úr henni. 150 þús­und laxar voru upp­haf­lega í kvínni, svo komu göt á hana og svo voru x margir fiskar í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár