Forsætisráðherra mun svara spurningum um viðskipti Bjarna

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur ekki tjáð sig um við­skipta­sögu Bjarna Bene­dikts­sonar sem opin­ber­ast í Glitn­is­skjöl­unum.

Forsætisráðherra mun svara spurningum um viðskipti Bjarna
Myndaði rík­is­stjórn­ina eftir umfjöllun Katrín Jak­obs­dóttir mynd­aði rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum eftir að The Guardian, Stundin og Reykja­vík Media fjöll­uðu um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar í fyrra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stundin sendi Katrínu Jak­obs­dóttur, þing­konu VG og for­sæt­is­ráð­herra, spurn­ingar um skoð­anir hennar á því að þing­menn stundi við­skipti sam­hliða þing­mennsku og hvort opin­ber­anir um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar og fjöl­skyldu við Íslands­banka og Glitni hafi ein­hver áhrif á við­horf hennar til rík­is­stjórn­ar­sam­starfs­ins. Eins og kunn­ugt er hófu Vinstri græn rík­is­stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn í fyrra eftir að fyrri rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar hafði fallið vegna upp­reist æru-máls­ins og eftir að breska blaðið The Guardian, Stundin og Reykja­vík Media sögðu frá við­skiptum Bjarna Bene­dikts­sonar við Glitni í aðdrag­anda banka­hruns­ins árið 2008.

 

Katrín Jak­obs­dóttir náði ekki að svara spurn­ingum Stund­ar­innar fyrir prentun blaðs­ins sökum þess að ekki gafst til þess tími. Spurn­ing­arnar  voru sendar til Katrínar að kvöldi dags þriðju­dag­inn 23. októ­ber. Samkvæmt upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar, Láru Björgu Björns­dóttur, verður spurn­ing­unum svarað svo fljótt sem auðið er. 

Spurningar Stundarinnar til Katrínar Jakobsdóttur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Glitnisgögnin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár