Konan í myndbandinu stígur fram: „Ég er þessi kona“

Sigrún Sif Jóels­dóttir hlýddi á tólf ókunn­uga karla lesa upp frá­sögn hennar af ofbeldi. Í gegnum við­brögð þeirra spegl­aði hún sjálfa sig og sögu sína með allt öðrum hætti en áður. Loksins fékk hún við­ur­kenn­ing­una sem hún vissi ekki að hún þráði og stað­fest­ingu á því að það mátti eng­inn koma svona fram við hana.

Konan í myndbandinu stígur fram: „Ég er þessi kona“

Ofbeldi gegn konum er ekki einka­mál kvenna, er yfir­skrift her­ferðar UN Women til að vekja athygli á mik­il­vægi þess að karlar for­dæmi ofbeldi gegn konum og beiti sér mark­visst gegn því. Af því til­efni voru tólf karl­menn fengnir til þess að lesa upp frá­sagnir kvenna frá Víetnam, Úsbekistan, Gambíu, Myanmar og Íslandi. Það var ekki fyrr en þeir voru að ljúka við lest­ur­inn sem þeir átt­uðu sig á því að konan sem átti sög­una frá Íslandi sat á móti þeim. Viðbrögð mann­anna voru þess eðlis að engum duld­ist hversu brugðið þeim var, á meðan suma setti hljóðan runnu tár hjá öðrum. Konan var óþekkj­an­leg í her­ferð­inni en Sigrún Sif Jóels­dóttir stígur nú fram til þess að und­ir­strika þau skila­boð að ofbeldi er nær en þú heldur.

Konur sem verða fyrir ofbeldi

Stúlkum sé snemma inn­rætt að tala ekki um ofbeldi sem þær verða fyrir, því það geti verið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár