Sam­starfs­menn og keppi­nautar Helena er þjálf­ari og Michael reynslu­mesti leik­mað­ur­inn – en hann þráir starfið hennar.

Kvenþjálfarinn og sérvitri fótboltamaðurinn

Aðstand­endur sjón­varps­þáttar­að­ar­innar Heima­vallar, Heimebane, ræða um það sem gerist að tjalda­baki.

Stundum mætir raun­veruleikinn skáld­skapnum. Eins og þegar ég mæti á hótel í Berlín til þess að taka viðtal við aðal­leikara og skapara sjónvarps­þáttanna Heima­vallar – Heimebane. Skáld­skapurinn er að kona þjálfi norskt karlalið í efstu deild, en Helena verður í þáttunum fyrst kvenna til þess. Hún er leikin af Ane Dahl Torp, sem í þáttunum minnti mig lúmskt mikið á Elísabetu Gunnars­dóttur, fremsta kven­þjálfara Íslands. Svo mætir þarna einnig raun­verulegur frumkvöðull, John Carew, tæplega tveggja metra framherji sem var fyrsti blökku­maðurinn til þess að leika með norska lands­liðinu. Núna er hann hættur að spila og byrjaður að leika. Og þótt hann leiki fótbolta­mann þá er mun þyngra yfir persónunni en Carew, sem dansar nánast þegar hann labbar. Þetta er ekki maður sem fer framhjá neinum – nema óheppnum varnar­mönnum auðvitað.

Í þáttunum leikur hann Michael, 38 ára leikmann sem er kominn aftur heim til Noregs til að ljúka ferlinum. …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár