Greiðir sektir vegna brota við búrkubanni

Fransk-alsírskur fjár­festir sem hyggst greiða sektir vegna búrku­banns­ins í Danmörku hefur reitt þing­menn Danska þjóð­ar­flokks­ins til reiði. Þeir vilja nú að refs­ingin verði fang­els­is­vist í stað sekta.

Greiðir sektir vegna brota við búrkubanni
Bann við búrkum Samkvæmt lögum sem gengu í gildi í Danmörku um mán­að­ar­mótin er óheim­ilt að hylja and­lit sitt á almanna­færi. Mynd: Wikimedia Commons

Fransk-alsírskur við­skipta­jöfur, Rachid Nekkaz, hefur lýst því yfir að hann muni borga hverjar þær sektir sem  lagðar verða á fólk í Danmörku fyrir að bera búrkur eða niqab. Samkvæmt lögum sem tóku gildi nú um mán­að­ar­mótin er fólki almennt óheim­ilt að hylja and­lit sitt á almanna­færi í Danmörku. 29 ára gömul kona var sektuð strax 3. ágúst fyrir að hylja and­lit sitt en hún klædd­ist niqab.

Mjög skiptar skoð­anir eru í Danmörku um lögin og mót­mæltu hund­ruð manns þeim í höf­uð­borg­inni Kaup­manna­höfn 1. ágúst síð­ast­lið­inn. Þau sem eru lög­unum andsnúin segja að í þeim felist for­dómar í garð múslima enda bein­ist lögin nán­ast ein­göngu að búrkum og niqab, þrátt fyrir að einnig sé óheim­ilt að hylja and­lit sitt með lamb­hús­hettum og ýmis konar grímum öðrum. Lögin eru einkum sögð runnin undan rifjum Danska þjóð­ar­flokks­ins, sem hefur á stefnu­skrá sinni mjög harða afstöðu gegn útlend­ingum í Danmörku.

Rachid Nekkaz

Yfir­lýs­ing Nekkaz um að hann muni koma til Kaup­manna­hafnar 11. sept­em­ber næst­kom­andi til að greiða sektir við brotum á búrku­bann­inu, og að hann muni koma til borg­ar­innar mán­að­ar­lega eftir það í sama til­gangi, hafa farið öfugt ofan í full­trúa Danska þjóð­ar­flokks­ins. Talmaður flokks­ins í útlend­inga- og inn­flytj­enda­málum vill að rík­is­stjórnin geri breyt­ingar á lög­unum á þann veg að í stað sekta varði það fang­elsi að brjóta þau. Í ofaná­lag eigi að reikna sekt­ar­greiðsl­urnar sem Nekkaz mun greiða sem tekjur og skatt­leggja þær konur sem hann greiðir sektir fyrir í sam­ræmi við það. Sem stendur varðar það sekt að jafn­virði 1.000 dönskum krónum, að brjóta lögin. Við end­ur­tekin brot hækkar sektin og við fjórða brot verður hún 10.000 danskar krónur. Það jafn­gildir 166 þús­und íslenskum krónum.

Rachid Nekkaz stofn­aði félaga­sam­tök árið 2010 í þeim til­gangi að greiða sektir þeirra kvenna sem sektaðar væru fyrir að bera búrkur eða niqab. Stofn­fram­lag sam­tak­anna nam tveimur millj­ónum evra. Nekkaz mun hafa greitt sektir sem lagðar hafa verið á konur í Belgíu, Sviss, Hollandi, Þýska­landi og Frakk­landi. Hann hefur lýst því yfir að hann hafi þegar greitt 1.500 sektir af þessu tagi. Í við­tali við danska blaðið Berl­ingske Tidene segir Nekkaz að hann sé sjálfur mót­fall­inn niqab en hann hygg­ist verja frelsi kvenna um heim allan til að klæð­ast slíkum klæðn­aði.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár