Ásmundur segir Pírata „sýna lítilsvirðingu sína á lýðræðinu og skoðunum fólks“

Píratar snið­ganga hátíð­ar­fund­inn á Þing­völlum vegna ræðu­halda Piu Kjærs­gaard, þing­for­seta Dana sem er þekkt fyrir útlend­inga­andúð. Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hneyksl­ast á þing­flokknum.

Ásmundur segir Pírata „sýna lítilsvirðingu sína á lýðræðinu og skoðunum fólks“

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýnir Pírata vegna þeirrar ákvörð­unar þing­flokks­ins að snið­ganga hátíð­ar­fund­inn á Þing­völlum í dag. Með þessu vilja Píratar mót­mæla því að Piu Kjærs­gaard, þing­for­seta Dana og fyrr­ver­andi for­manni Danska Þjóð­ar­flokks­ins, hafi verið boðið að ávarpa Alþingi á ald­ar­af­mæli full­veldis Íslend­inga.

„Pírata sýna lít­ils­virð­ingu sína á lýð­ræð­inu og skoð­unum fólks en mest er skömm þeirra við þjóð­ina að mæta ekki á þing­fund á Þing­völlum á merkum tíma­mótum í sögu sjálf­stæð­is­bar­áttu Íslend­inga,“ skrifar Ásmundur á Facebook. 

Eins og Stundin fjall­aði um í gær er Pia þekkt fyrir útlend­inga­andúð og bar­áttu sína gegn fjöl­menn­ingu og íslam. Árið 2010 kall­aði hún eftir því að stjórn­völd bönn­uðu inn­flytj­endum sem ekki væru af vest­rænum upp­runa að setj­ast að í Danmörku. Auk þess hefur hún hvatt til þess að gervi­hnatta­loft­net í hverfum inn­flytj­enda verði bönnuð og að öllum inn­flytj­endum sem gerst hefðu brot­legir við dönsk lög verði vísað úr landi. 

„Að utan­þings­manni sem hefur unnið jafn ötul­lega að því að ala á sundr­ungu, útlend­inga­hatri og Pia Kjærs­gaard hefur gert sé boðið heið­ur­sávarp á hátíð­ar­fundi sem sam­eina ætti okkur Íslend­inga, burt­séð frá trú okkar og upp­runa er hneyksli,“ segir í til­kynn­ingu sem þing­flokkur Pírata­sendi frá sér um hádeg­is­leytið í dag.

Ásmundur telur ákvörðun Pírata fela í sér lít­ils­virð­ingu við lýð­ræðið og skoð­anir Piu Kjærs­gaard. Sjálfur hefur Ásmundur marg­sinnis verið gagn­rýndur fyrir for­dóma­full ummæli um útlend­inga og múslima.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár